Færri nýbyggingar seldar á höfuðborgarsvæðinu

Mun færri nýbyggingar hafa selst á höfuðborgarsvæðinu í ár samanborið við sama tímabili í fyrra. Það sem af er ári hafa 120 nýbyggingar selst á höfuðborgarsvæðinu en á sama tímabili í fyrra var sá fjöldi um 276.

7DM_3294_raw_170627.jpg húsnæði fólk hús fasteign hús reykjavík
Auglýsing

Hlut­falls­lega færri nýbygg­ingar voru seldar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í febr­úar á þessu ári sam­an­borið við mán­uð­inn á und­an. Í febr­úar voru 11 pró­sent við­skipta á höf­uð­borg­ar­svæð­inu nýbygg­ingar en 16 pró­sent við­skipta í jan­ú­ar. Jafn­framt hafa mun færri nýbygg­ingar selst á höf­uð­borg­ar­svæð­inu það sem af er ári en á sama tíma­bili í fyrra. Utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er þró­unin aftur á móti önnur en þar var hlut­fall nýbygg­inga 24 pró­sent í febr­ú­ar. Þetta kemur fram í nýrri mán­að­ar­skýrslu Íbúða­lána­sjóðs. 

Aukn­ing í sölu nýbygg­inga utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins 

Mynd: ÍbúðalánasjóðurNýbygg­ingar eru skil­greindar af Íbúða­lána­sjóði sem íbúðir með skráð bygg­ing­arár sama og söluár eða árið þar á und­an. Á milli mán­aða og milli ára má sjá hlut­falls­lega minni sölu nýbygg­inga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Sam­kvæmt skýrsl­unni vor­u 11 pró­sent við­skipta á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í febr­úar vegna kaupa á nýbygg­ingum sam­an­borið við 16 pró­sent við­skipta í jan­ú­ar. 

Til sam­an­burðar var hlut­fall nýbygg­inga 17 pró­sent kaup­samn­inga í febr­ú­ar­mán­uði í fyrra og í jan­úar 2018 var hlut­fallið 33 pró­sent. Það sem af er árinu hafa 120 nýbygg­ingar selst á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en á sama tíma­bili í fyrra var sá fjöldi um 276.

Auglýsing

Á ákveðnum svæðum utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er þró­unin hins vegar önn­ur. Í febr­úar voru 24 pró­sent íbúða­við­skipta utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins vegna nýbygg­inga og það sem af er ári hafa 119 nýbygg­ingar selst þar en 83 fyrir ári síð­an. Þá var hlut­falls­leg aukn­ing mest í Reykja­nesbæ og Hvera­gerð­i. 

Mesta lækkun vísi­tölu íbúða­verðs í rúm átta ár 

Vísi­tala íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu lækk­aði um 1,0 pró­sent í febr­úar sem er mesta mán­að­ar­lækkun frá des­em­ber 2010 þegar íbúða­verð lækk­aði um 1,2 pró­sent milli­ ­mán­aða. ­Vísi­tala íbúða­verðs mælir breyt­ingu á íbúða­verði sam­kvæmt und­ir­rit­uðum kaup­samn­ingum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hverju sinn­i. 

Í skýrsl­unni segir að nýbygg­ingar séu alla jafna dýr­ari en eldri íbúðir og gæti því hlut­falls­lega minni sala þeirra í febr­úar skýrt lækkun á vísi­tölu íbúða­verðs milli mán­aða.  Árs­hækkun íbúða­verðs mælist nú 3,7 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en það er minnsta 12 mán­aða hækkun sem hefur mælst síðan í maí 2011.

6474 íbúðir í bygg­ingu í mars 

Óupp­fyllt íbúða­þörf á land­inu öllu er nú um 5.000 til 8.000 íbúð­ir, sam­kvæmt nið­ur­stöðu átaks­hóps rík­is­stjórn­ar­innar um aukið fram­boð á íbúð­um. Mikil upp­bygg­ing er hins vegar fyr­ir­huguð á næstu árum og er áætlað að um 10.000 íbúðir verði byggðar á árunum 2019 til 2021. Gangi þær áætl­anir eftir mun óupp­fyllt íbúða­þörf verða um 2.000 íbúðir í upp­hafi árs 2022. 

 Sam­kvæmt grein­ingu Sam­taka iðn­að­ar­ins voru 6.474 íbúðir í bygg­ingu í mars 2019 á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, í nágranna­sveit­ar­fé­lögum þess og á Norð­ur­landi. Mik­il aukn­ing hefur verið á íbúða­upp­bygg­ingu í ná­granna­sveit­ar­fé­lögum Reykja­vík­ur, sér­stak­lega í Reykja­nesbæ en þar eru nú um 530 íbúðir í bygg­ing­u. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent