Samþykktu að fresta Brexit til 31. október

Th­eresa May, for­sæt­is­ráðherra Bret­lands, féllst í nótt á boð Evr­ópu­sam­bands­ins um sex mánaða viðbótar­frest fyr­ir Breta til að ganga úr Evrópusambandinu.

Theresa May, forsætisráðherra Bretlands.
Auglýsing

Th­er­es­a May, for­­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, ­sam­þykkt­i í nótt boð Evr­­ópu­­sam­­bands­ins um að fresta Brex­it til 31 októ­ber næst­kom­andi. Don­ald Tusk, for­seti leið­toga­ráðs Evr­ópu­sam­bands­ins, stað­festi þetta á Twitter í nótt. Frest­unin er sveigj­an­leg og því geta Bretar yfir­gefið sam­bandið fyrr náist sam­komu­lag um útgöng­una fyrir þann tíma. Frá þessu er greint á vef BBC.

Stendur til boða að yfir­gefa sam­bandið fyrr

Leið­togar aðild­ar­ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins fund­uðu í Brus­sel í gær til að ákveða mögu­lega fram­leng­ingu á frest­un Brex­it. Til stóð að Bretar yfir­gæfu Evr­ópu­sam­band­inu á föstu­dag­inn næst­kom­andi og þá án samn­ings. Ther­es­a May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, fund­aði með leið­tog­unum síð­degis en hennar til­laga var að fresta útgöng­unni til 30 jún­í. Margir ­leið­tog­anna töldu þann frest ekki nægan og var talað um að frest­ur­inn yrði allt að ár. Don­ald Tusk til­kynnti síðan seint í gær­kvöld Bretum væri boðið sex mán­aða við­bót­ar­frest­ur. 

Th­er­es­a Ma­y ­sam­þykk­ti ­frest­inn en sagði í kjöl­farið á blaða­manna­fund­i að Bret­land myndi stefna að því að yfir­gefa sam­bandið sem allra ­fyrst. Sveigj­an­leik­i frest­un­ar­inn­ar býð­ur­ ­upp á þann mögu­leika að Bretar geti gengið úr sam­band­inu fyrir 1. júní ef breska þingið sam­þykkir ­út­göngu­leið á fyrstu þremur vikum maí­mán­að­ar. 

Auglýsing

Bret­land verður að taka þátt í kosn­ingum til Evr­ópu­þings eða yfir­gefa ­sam­band­ið ­fyrir 1. júní

Don­ald Tusk sagði á blaða­manna­fundi í Brus­sel í nótt að fram­haldið væri nú í höndum Breta. Bretar gætu enn stað­fest samn­ing­inn sem þingið hefur nú þegar hafnað þrisvar og þannig yfir­gefið sam­band­ið. Hann sagði Breta jafn­framt geta fundið aðrar leiðir eða dregið ákvörðun sína um útgöng­una til baka. Bretar geta þó ekki breytt samn­ingnum um úrgöng­una. 

Tusk sagði jafn­framt fram­leng­ingin væri eins sveigj­an­leg og hann hafði átt von á en þó styttri en hann bjóst við. Að hans mati ætti hún þó að duga til að kom­ast að bestu mögu­leg­u ­lausn. Hann beindi að lokum þeim orðum til bresku þjóð­ar­innar að „vin­sam­leg­ast ekki láta þennan tíma fara til spill­is.“

Sam­kvæmt umfjöll­un BBC verður Bret­land að taka þátt í kosn­ingum til Evr­ópu­þings eða að öðrum kosti yfir­gefa sam­bandið þann 1. júní næst­kom­and­i. Jean Claude J­uncker, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, sagði að þó það gæti þótt undra­legt að Bretar taki þátt í kosn­ing­um þá yrði að virða evr­ópsk lög. 





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent