Gjaldþrot WOW air getur haft mjög mikil áhrif á rekstur Reykjavíkurborgar. Þetta kemur fram í sviðsmynd áhættumatsdeildar fjármálaskrifstofu borgarinnar um efnahagsleg áhrif af falli WOW air. Þar segir að sjóðstaða borgarráðs sé sterk en fari hratt lækkandi en helst þó jákvæð í um eitt og hálft ár eftir að fall WOW skellur á. Samkvæmt áhættumatsdeildinni gæti þessi lækkandi sjóðstaða gefið tilefni til aðhaldsaðgerða borgarinnar auk endurskoðunar á fjárfestingaráætlun.
Gera ráð fyrir talsverðum samdrætti strax
Minnisblað áhættumatsdeildarinnar var lagt fram á borgarráðsfundi í gær. Í minnisblaðinu setur deildin upp sviðsmynd þar sem áhrifin af falli WOW air á helstu áhættuþætti á rekstur og sjóðsstreymi A-hluta fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar eru skoðuð. Sviðsmyndin tekur meðal annars mið af niðurstöðum greiningar starfshóps ríkisstjórnarinnar frá því í fyrra um fall WOW air og nýlegum greiningum Reykjavík Economics og Arion banka um sama mál.
Í sviðsmynd deildarinnar er miðað við eins konar versta mögulega tilvik greininganna og metin eru afleidd áhrif á rekstur Reykjavíkurborgar yfir 5 ára áætlunartímabilið 2019 til 2023. Gert er ráð fyrir talsverður samdrætti strax í ár og að verðbólga aukist fyrstu tvö árin miðað við forsendur fjárhagsáætlunar, en nálgist síðan markmið Seðlabanka Íslands seinni hluta fimm ára áætlunartímabilsins. Jafnframt er gert ráð fyrir að vinnumagn minnki um 1,5 prósent fyrsta árið en taki svo að aukast að nýju og nálgist svo langtímameðaltal síðustu tvö árin.
Lægri arðgreiðslur frá OR
Þá segir í minnisblaðinu að talið sé að Orkuveita Reykjavíkur geti orðið fyrir miklum áhrifum af falli WOW air, bæði vegna hærri verðbólgu og gengisveikingar. OR er með mikið af lánum sem bera eigendaábyrgð og eru bæði í verðtryggðum krónum og erlendri mynt. „Því ber að hafa í huga að aukin verðbólga og veiking gengis hefur bein áhrif á skuldbindingu Reykjavíkurborgar vegna OR og afborganir og vaxtagreiðslur félagsins af þeim skuldbindingum,“ segir í minnisblaðinu. Því er gert ráð fyrir lægri arðgreiðslum frá OR fyrstu tvö árin af fimm ára fjármálaáætlun.
Í sviðsmyndinni segir að fækkun ferðamanna, aukið framboð á húsnæði og minnkandi eftirspurn vegna hækkandi húsnæðisverð mun leiða til þess að íbúðaverð hækki minna en gert er ráð fyrir í fjárhagsáætlun Auk þess eru áhrifin á verð á atvinnuhúsnæði sögð verða mun meiri, enda hafi samdráttur í ferðaþjónustu bein áhrif á hótel- og gistirými, veitingastaði og verslunarhúsnæði. Gert er ráð fyrir að verð á atvinnuhúsnæði lækki um um það bil 10 prósent á tveggja ára tímabili.
Rekstrarniðurstaða 3,3 milljörðum lægri
Samkvæmt sviðsmyndinni mun rekstrarniðurstaða versna strax á fyrsta ári en talið er að niðurstaða þessa árs verði um 3,3 milljörðum króna lægri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Enn fremur er talið sjóðstaðan falli hratt yfir tímabilið og í lokin verði handbært fé orðið 35 milljónum króna lægra en gert er ráð fyrir í fjárhagsáætlun. Það er vegna minnkandi tekna af útsvari, fasteignagjöldum og sölu byggingarréttar og gatnagerðargjalda. Auk þess sem verð á íbúðarhúsnæði hækki hægar en í fjárhagsáætlun og verð á atvinnuhúsnæði lækki á tímabilinu.
Í minnisblaðinu er þó bent á að niðurstöður þeirra aðila sem lagðar eru til grundvallar í sviðsmynd deildarinnar séu háðar mikilli óvissu sem og mat fjármálaskrifstofu á afleiddum áhrifum af þeim á rekstur Reykjavíkurborgar. „Óvíst er hvort og hversu hratt aðrir aðilar muni koma inn á flugmarkað og fylla í skarð WOW air sem og hversu mikið aðrar atvinnugreinar geta tekið við því vinnuafli sem tapast í ferðaþjónustu. Að auki eru almennt taldar einhverjar líkur á því að Seðlabankinn grípi í taumana og lækki vexti og örvi þar með hagvöxt,“ segir að lokum í minnisblaðinu.
Mikilvægt að ferðamenn haldi áfram að koma
Á fundi borgarráðs í gær sögðu borgarráðsfulltrúar meirihlutans niðurstöðu áhættumatsdeildarinnar vera fóður í áherslur og viðbrögð borgarinnar í kjölfar gjaldþrotsins. Nær allir ferðamenn sem komi til Íslands komi til Reykjavíkur og meginþungi allra fyrirtækja í ferðaþjónustu geri út frá borginni. „Þess vegna hefur borgin gríðarlega hagsmuni að því að ferðamenn haldi áfram að koma til Íslands svo ferðamennska haldi áfram að blómstra,“ segir í bókuninni.