365 miðlar vilja breytingu á stjórn Skeljungs

Félag í eigu Ingibjargar Pálmadóttur hefur farið fram á stjórnarkjör í Skeljungi eftir að hafa eignast tíu prósent í félaginu. Ljóst að félagið mun bjóða fram stjórnarmann. Síðast þegar það gerðist var Jón Ásgeir Jóhannesson boðinn fram í stjórn Haga.

Skeljungurskráning
Auglýsing

365 miðlar hf., félag skráð í eigu Ingi­bjargar Pálma­dótt­ur, hefur farið fram á að boðað verði til hlut­hafa­fundar í Skelj­ungi til að setja stjórn­ar­kjör á dag­skrá. Þetta gerð­ist eftir að 365 miðlar keyptu, beint og í gegnum tvo fram­virka samn­inga, alls 10,01 pró­sent hlut í Skelj­ungi.

Í til­kynn­ingu frá Skelj­ungi til Kaup­hallar Íslands segir að 365 miðlar telji „að vegna tals­verðra breyt­inga sem orðið hafa í hlut­hafa­hópi félags­ins nýverið sé rétt að umboð stjórnar verði end­ur­nýj­að.“

Sam­kvæmt lögum um hluta­fé­lög skal boða skuli til hlut­hafa­fundar ef hlut­haf­ar, sem ráða yfir minnst fimm pró­sent hluta­fjár­ins, krefj­ast þess skrif­lega og greina um ástæður þess. Sam­kvæmt sömu greinum hefur stjórn 14 daga til að senda út fund­ar­boð. Í til­kynn­ing­unni frá Skelj­ungi kemur fram að stjórn félags­ins muni nú und­ir­búa boðun hlut­hafa­fund­ar.

365 miðlar voru einu sinni fjöl­miðla­­fyr­ir­tæki en er nú að mestu fjár­­­fest­ing­­ar­­fé­lag. Félagið seldi stærstan hluta fjöl­miðla­veldis síns til Sýnar í lok árs 2017 og fékk meðal ann­­ars greitt fyrir með hluta­­fé, en hélt eftir Frétta­­blað­inu. Það er nú rekið af Torgi ehf., dótt­­ur­­fé­lag 365 miðla.

Auglýsing
Í októ­ber 2018 seldu 365 miðlar allan hlut sinn í Sýn fyrir tæpa tvo millj­­arða króna og keyptu í stað­inn hluti í Hög­­um. Um tíma nam eign­­ar­hlutur 365 miðla rúm­lega fjórum pró­­sentum en á nýjasta birta hlut­haf­a­lista Haga er félagið ekki á meðal 20 stærstu hlut­hafa.

Reyndu að kom­ast í stjórn Haga

Ingi­björg er eig­in­kona Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og hann tekur virkan þátt í fjár­fest­inga­verk­efnum félaga eig­in­konu sinn­ar. Eftir að félög hennar höfðu keypt alls 4,3 pró­sent hlut í Högum fyrr á þessu ári sótt­ist Jón Ásgeir eftir því að verða kjör­inn í stjórn félags­ins í jan­úar síð­ast­liðn­um.

Við­mæl­endur Kjarn­ans segja að hann hafi reynt að afla stuðn­ings víða en ekki hlotið náð fyrir til­nefn­ing­ar­nefnd Haga, sem til­nefndi sínar í stjórn að mestu leyti á sam­ráði við stærstu hlut­hafa. Stærstu hlut­hafar Haga eru stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins (Gildi, LSR, Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna, Birta, Stapi, Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn og Söfn­un­ar­sjóður líf­eyr­is­rétt­inda eiga sam­tals 52 pró­sent í Hög­um) og tveir sjáv­ar­út­vegs­risar, Sam­herji og FISK-­seafood, útgerð­ar­armur Kaup­fé­lags Skag­firð­inga.

Þegar ljóst var að Jón Ásgeir var ekki á meðal þeirra sem til­nefndir voru í stjórn­ina hófst bar­átta hans fyrir því að þrýsta á kjör sitt með öðrum hætti, ann­ars vegar með því að vísa til kosta sinna og hins vegar með því að reyna að knýja fram marg­feld­is­kosn­ingu.

Það tókst ekki held­ur. Í kjöl­farið seldu 365 miðlar sig niður í Högum og keyptu stóran hlut í Skelj­ungi. Nú vill félagið fá stjórn­ar­mann þar.

Stærstu eig­endur Skelj­ungs utan 365 miðla eru að mörgu leyti sömu líf­eyr­is­sjóðir og eru stórir eig­endur í Hög­um, að Líf­eyr­is­sjóði verzl­un­ar­manna frá­töld­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent