Forstjóri Samkeppniseftirlitsins: „Þar sem er vesen, þar erum við“

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir að gera megi ráð fyrir því að fyrirtæki sem lendi í rannsókn vegna brota eða samkeppnishindrana séu ekki ánægð með starfsemi eftirlitsins.

Páll Gunnar Pálsson 24. apríl 2018 klippa 1
Auglýsing

„Það mátti gera ráð fyrir því fyrir fram að í þeim hópi myndi Sam­keppn­is­eft­ir­litið kannski líta út fyr­ir, eða koma illa út, í sam­an­burði ein­fald­lega vegna þess að Sam­keppn­is­eft­ir­litið er frá­brugðið öðrum stofn­unum sem spurt var um vegna þess að við erum brota­eft­ir­lit. Þar sem er ves­en, þar erum við.“

Þetta segir Páll Gunnar Páls­son, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarn­ans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem sýndur verður klukkan 21:00 í kvöld. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neð­an:

Þar ræða þeir meðal ann­ars um nýbirta könnun sem ráð­gjafa­nefnd um opin­berar eft­ir­lits­reglur lét Mask­ínu gera til að kanna eft­ir­lits­menn­ing­una á Íslandi, og var birt nýver­ið. Í nið­ur­stöð­unum kemur fram að af mati á 16 mis­mun­andi eft­ir­lits­stofn­unum kom Sam­keppn­is­eft­ir­litið hvað verst út.

Páll Gunnar segir að það sé jákvætt að kann­anir sem þessar séu gerð­ar. „Við erum alltaf að hlusta eftir því hvernig hægt sé að gera hlut­ina bet­ur. Í þessi til­viki þá er ein­hver hópur fyr­ir­tækja á ein­hverjum lista hjá Sam­tökum atvinnu­lífs­ins spurð­ur. Það eru all­nokkrar eft­ir­lits­stofn­anir þarna und­ir.“

Auglýsing
Gera mætti ráð fyrir því að Sam­keppn­is­eft­ir­litið kæmi illa út vegna eðlis starf­semi þess, sem snýst um brota­eft­ir­lit. „Við erum að grípa inn í þegar okkur sýn­ist að ein­hver brot eða sam­keppn­is­hindr­anir séu í gangi. Það leiðir af eðli máls að fyr­ir­tæki sem lendir í rann­sókn hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu er ekk­ert sér­stak­lega ánægt með það.“

Hann segir að það hafi valdið sér von­brigðum hversu tak­mörkuð könn­unin sé. „Það kemur í ljósi að 21 fyr­ir­tæki af þessum hópi seg­ist hafa verið í sam­skiptum við sam­keppn­is­eft­ir­litið á síð­ustu tólf mán­uð­um. Það er afar lit­ill hóp­ur. Okkur sýn­ist að á árinu 2018 höfum við verið í form­legum sam­skiptum við upp undur 450-500 fyr­ir­tæk­ið.“

Þorri þeirra sam­skipta séu góð. „Þannig að það er erfitt að sjá hvað sé hægt að lesa út úr þessu, alla­vega í augna­blik­in­u.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent