Ekkert komið fram sem styður leka frá Má eða Arnóri til RÚV

Seðlabankinn hefur svarað bréfi forsætisráðherra vegna Samherjamálsins.

Már Guðmundsson
Auglýsing

Ekk­ert hefur fund­ist sem styður það að gögnum hafi verið lekið frá Má Guð­munds­syni, seðla­banka­stjóra, eða Arn­óri Sig­hvats­syni, aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra á þeim tíma, til RÚV, í tengslum við Sam­herj­a­mál­ið.

Þetta kemur fram í ítar­legu svari Seðla­banka Íslands við spurn­ingum Katrínar Jak­obs­dótt­ur, for­sæt­is­ráð­herra, í tengslum við Sam­herj­a­málið svo­nefnda og athuga­semdir Umboðs­manns Alþingis við stjórn­sýslu Seðla­bank­ans. 

Í svari Seðla­bank­ans segir að ekk­ert hafi fund­ist sem „styður við að Rík­­is­út­­varp­inu hafi verið veitt­ar trún­að­ar­­­upp­­lýs­ing­ar [um fyr­ir­hug­aða hús­­leit hjá Sam­herja] og að seðla­banka­­stjóri eða aðstoð­ar­seðla­banka­­stjóri hafi haft um það vitn­eskju og hvað þá heim­il­að.“

Auglýsing

Stór hluti af bréfi Seðla­bank­ans til for­sæt­is­ráð­herra er leynd­ur, og kemur ekki fram hvað þar kemur fram. 

Bréfið er 56 blað­síður, en á síðum 31 til 44 eru engar upp­lýs­ing­ar, og er þeim upp­lýs­ingum þannig haldið leynd­um. Þar er fjallað um grein­ar­gerð banka­ráðs Seðla­bank­ans vegna Sam­herj­a­máls­ins.

For­sæts­ráð­herra kall­aði eftir skýr­ingum frá Seðla­bank­anum vegna þriggja meg­in­at­riða, með bréfi sínu 15. mars.

Hin tvö atriðin sem for­­sæt­is­ráð­herra óskaði nán­­ari skýr­inga á tengj­ast úr­­bót­um á stjórn­­­sýslu Seðla­bank­ans, í ljósi dóma Hæsta­réttar meðal ann­ars, og að fyr­ir­liggj­andi af­­stöðu rík­­is­sak­­sókn­­ara frá ár­inu 2014 til gild­is refsi­heim­ilda, sem ít­­ar­­lega var fjallað um í áliti Umboðs­manns Alþing­is.

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri og einn stærsti eig­andi Sam­herja ásamt Krist­jáni Vil­helms­syni, hefur gagn­rýnt Seðla­bank­ann harð­lega, alveg frá því að bank­inn fram­kvæmdi hús­leit í höf­uð­stöðvum fyr­ir­tæk­is­ins vorið 2012. Dóms­nið­ur­stöður hafa fallið Sam­herja í hag, og hefur Þor­steinn Már sagt álit Umboðs­manns vera „enn einn sig­ur­inn“ fyrir Sam­herja í deilum fyr­ir­tæk­is­ins við Seðla­bank­ann.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent