Forsvarsmenn flugvélaleigufyrirtækisins Air Lease Corporation segjast áskilja sér allan rétt til að krefja Isavia og íslenska ríkið um bætur vegna tjóns sem félagið kveðst hafa orðið fyrir vegna öftrunar Isavia á brottför farþegaþotu félagsins frá Keflavík. Í tilkynningu frá félaginu segir stofnandi ALC að krafa Isavia um að „óskylt fyrirtæki“ gangist í ábyrgðir fyrir skuldum sem Isavia beri sjálft ábyrgð á að hafa leyft WOW air að safna hjá sér sé í senn ófyrirleitin og óskiljanleg.
Segir WOW hafa samþykkt að afhenda vélina í apríl
Farþegaþota ALC hefur verið meinuð brottför í nærri fjórar vikur eða allt frá gjaldþroti WOW air. Í tilkynningu frá félaginu segir að tjón ALC vegna aðgerða Isavia sé umtalsvert og aukist með hverjum degi. Félagið segir WOW air hafa samþykkt, áður en til gjaldþrotsins kom, að afhenda ALC vélina nú í apríl og því hafi félagið verið búið að skrifa undir samninga um að leigja þotuna til annars flugfélags.
Isavia hefur sagst ekki ætla að láta þotuna af hendi nema ALC standi skil á öllum skuldum WOW air við Keflavíkurflugvöll sem söfnuðust upp síðustu 9 mánuði rekstrar WOW air, upp á ríflega tvo milljarða króna. Dómsmál ALC á hendur Isavia til að fá eign sína afhenta var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness á þriðjudag. Dómari veitti Isavia vikufrest til að leggja fram greinargerð og afla gagna, en málflutningur fer fram 2. maí næstkomandi.
Í tilkynningu félagsins segir að ALC telji það fráleitt að lögaðili á Íslandi geti lagt fram eigur annara sem veð og félagið undrist að opinbert hlutafélag taki þátt í samkomulagi um slíkt og telji það í samræmi við ákvæði loftferðalaga. Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir hafi Isavia ekki heldur fengist til að leggja fram sundurliðun gjaldanna að baki skuld WOW air.
Þá telur félagið að með framgöngu sinni hafi Isavia brotið gegn eignarréttarákvæðum stjórnarskrár. Auk þess sem WOW air, vegna gjaldþrots síns, hafi ekki lengur haft yfirráð yfir farþegaþotunni þegar henni var meinuð brottför og því geti Isavia ekki byggt á heimild loftferðalaga til að stöðva för þotunnar.
Gagnrýna að Isavia geri upp á milli flugrekanda
Steve Udvar-Házy, stofnandi og starfandi stjórnarformaður ALC, segir málatilbúnað Isaviu vekja upp alvarlegar spurningar um framgöngu Isavia og hvernig félagið hefur gert upp á milli flugrekanda. „Á meðan WOW air var á laun, að minnsta kosti frá júlí 2018, heimilað að safna fordæmalausum skuldum við Isavia hafa önnur flugfélög sem til Íslands fljúga þurft að greiða öll flugvallargjöld á tíma og í samræmi við reglur. Í þeim hópi eru félög á borð við Icelandair, Wizz Air, SAS, EasyJet, Atlantic Airways, British Airways, Delta, og Lufthansa. Ekki er að sjá að stuðningur Isavia við einn flugrekanda umfram aðra eigi nokkra stoð í lögum eða reglum,“ segir Steve í tilkynningu frá félaginu.
Þá segir hann að það hljóti einnig að vekja upp spurningar að Isavia skuli hafa samið „á laun“ við WOW air um að flugfélagið hefði öllum stundum flugvél í eigu annarra á Keflavíkurflugvelli sem tryggingu. Hann segir ALC hafi aldrei upplýst um að eigur félagsins væru notaðar með þessum hætti og hefði aldrei samþykkt það. „Framganga Isavia og krafa um að óskylt fyrirtæki gangist í ábyrgðir fyrir skuldum sem til eru komnar án vitundar þess og Isavia ber sjálft ábyrgð á að hafa leyft WOW air að safna hjá sér, er í senn ófyrirleitin og óskiljanleg,“ segir Steve.
Valdið íslenskum stjórnvöldum álitshnekki
Að lokum segir í tilkynningunni að ALC komi til með að leita allra leiða til að fá hnekkt ákvörðunum Isavia og endurheimta eign sína. Félagið muni leita liðsinnis hverra þeirra stofnana sem að þessum málum koma og láta sig varða viðskipti fyrirtækja á alþjóðavettvangi, til dæmis til Alþjóðasambands flugfélaga, Alþjóðaflugmálastofnunarinna, stjórnvalda í Bandaríkjunum og stofnana Evrópusambandsins.
„Málið hefur þegar valdið Íslandi og íslenskum stjórnvöldum álitshnekki og fylgjast fyrirtæki í flugiðnaði af áhuga með framvindunni,“ segir enn fremur í tilkynningunni.