Tatjana Latinovic var í gær kosin formaður Kvenréttindafélags Íslands á aðalfundi félagsins í gær. Tatjana hefur setið í stjórn félagsins og gegnt embætti varaformanns síðan 2015 en hún tekur við af Fríðu Rós Valdimarsdóttur sem lætur af formennsku eftir fjögur ár og átta ára stjórnarsetu.
Tatjana er jafnframt fyrsti formaður Kvenréttindafélagsins af erlendum uppruna, en félagið var stofnað af Bríeti Bjarnhéðinsdóttur árið 1907.
Baráttukona fyrir kvenréttindum og réttindum innflytjenda í aldarfjórðung
Í tilkynningu frá Kvenréttindafélaginu segir að Tatjana hafi verið baráttukona fyrir kvenréttindum og réttindum innflytjenda síðan hún flutti til Íslands árið 1994. Hún er einn stofnenda W.O.M.E.N. in Iceland – Samtaka kvenna af erlendum uppruna og sat hún einnig í stjórn Kvennaathvarfsins, frá 2004 til 2012. Þá er Tatjana jafnframt formaður Innflytjendaráðs og situr í Jafnréttisráði fyrir hönd Kvenréttindafélagsins.
„Kvenréttindafélag Íslands á sér 112 ára langa sögu í baráttu fyrir jafnrétti. Ég er stolt að fá tækifæri til að feta í fótspor kvenna sem hafa gegnt formennsku á undan mér og hlakka til að leggja mitt að mörkum að leiða það í áframhaldandi baráttu fyrir jafnrétti fyrir alla,“ sagði Tatjana í ávarpi til fundargesta á aðalfundi félagsins.
Á fundinum voru fimm nýjar konur kosnar í stjórn, Bergljót Tulinius Gunnlaugsdóttir, Eva Huld Ívarsdóttir, Stefanía Sigurðardóttir, Helga Baldvins Bjargardóttir og Hjördís Guðný Guðmundsdóttir. Taka þær sæti í stjórn Kvenréttindafélagsins þar sem áfram sitja Ellen Calmon, Helga Dögg Björgvinsdóttir, Hildur Helga Gísladóttir og Steinunn Stefánsdóttir.