Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur skipað þriggja manna hæfisnefnd til að meta hæfni þeirra umsækjenda sem sótt hafa um embætti seðlabankastjóra.
Formaður nefndarinnar verður Sigríður Benediktsdóttir, hagfræðingur við Yale háskóla og fyrrverandi framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs Seðlabanka Íslands, sem skipuð er án tilnefningar og er jafnframt formaður nefndarinnar. Sigríður sat einnig í rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið sem skilaði umfangsmikilli skýrslu í apríl 2010.
Alls sóttu 16 um starf seðlabankastjóra, en Már Guðmundsson lætur af störfum í ágúst næstkomandi. Hann hefur þá setið þau tvö fimm ára skipunartimabil sem lög heimila honum að sitja.
Ráðgert er að endanleg niðurstaða hæfnisnefndar liggi fyrir eigi síðar en 15. júní næstkomandi.
Umsækjendur um embætti seðlabankastjóra:
- Arnór Sighvatsson, ráðgjafi seðlabankastjóra
- Ásgeir Jónsson, dósent og forseti hagfræðideildar Háskóla Íslands
- Ásgeir Brynjar Torfason, lektor við Háskóla Íslands
- Benedikt Jóhannesson, fyrrv. fjármála- og efnahagsráðherra
- Gunnar Haraldsson, hagfræðingur
- Gylfi Arnbjörnsson, hagfræðingur
- Gylfi Magnússon, dósent
- Hannes Jóhannsson, hagfræðingur
- Jón Danielsson, prófessor
- Jón G. Jónsson, forstjóri bankasýslu ríkisins
- Salvör Sigríður Jónsdóttir, nemi
- Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri
- Sturla Pálsson, framkvæmdastjóri markaðs-, viðskipta- og fjarstýringar í Seðlabanka Íslands
- Vilhjálmur Bjarnason, lektor
- Þorsteinn Þorgeirsson, sérstakur ráðgjafi á skrifstofu seðlabankastjóra
- Katrín Ólafsdóttir, lektor