Loftslagsmálin muni yfirgnæfa öll önnur mál næstu áratugi

Fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins fjallar um loftslagsmál í pistli í Morgunblaðinu en þar segir hann að mannfólkið verði að draga úr neyslu sinni í víðtækum skilningi þess orðs. Það sé stöðugt vaxandi neysla sem sé undirrót vandans.

Styrmir Gunnarsson
Styrmir Gunnarsson
Auglýsing

Það fer ekki á milli mála, hvort sem við lítum til umræðna út í heimi um lofts­lags­mál eða hér heima, að sá mála­flokkur mun yfir­gnæfa öll önnur mál í þjóð­fé­lags­um­ræð­um, ekki bara næstu ár heldur næstu ára­tugi.

Þetta skrifar Styrmir Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, í pistli sem ber tit­il­inn „Lofts­lags­málin verða stóru mál næstu ára og ára­tuga“ í sínu gamla blaði í dag.

Hann telur það smátt að smátt vera að skýr­ast um hvað lofts­lags­um­ræður muni snú­ast. „Kjarni þess boð­skap­ar, sem heyr­ist úr öllum áttum er, að mann­fólkið verði að draga úr neyzlu sinni í víð­tækum skiln­ingi þess orðs. Það sé stöðugt vax­andi neyzla, sem sé und­ir­rót vand­ans og þar á meðal ástæðan fyrir því að jökl­arnir á Íslandi eru ýmist að minnka eða hverfa.“

Auglýsing

Meiri bylt­ing á lífs­háttum en við gerum okkur grein fyrir

Styrmir spyr sig enn fremur hvað felist í því að minnka neyslu. „Það er aug­ljóst að í því felst að við munum vega að því, sem í raun er und­ir­staða hag­kerfa sam­tím­ans, hvort sem þau eru byggð upp á einka­fram­taki og einka­eign eða kap­ít­al­ismi undir alræð­is­stjórnum eins og í Kína og Rúss­landi. Og hvaða áhrif mun það hafa á dag­legt líf okkar og þau sam­fé­lög, sem hafa verið byggð upp, þegar neyzlan á öllum sviðum dregst stór­lega sam­an?“ spyr hann.

Hann segir að senni­lega felist í því meiri bylt­ing á sam­fé­lögum og lífs­háttum en við höfum ímynd­un­ar­afl til að átta okkur á. En þess breyt­ing verði, þótt eldri kyn­slóðir muni ekki upp­lifa hana nema rétt á byrj­un­ar­stigi og muni sú breyt­ing hafa ýmis­legt fleira í för með sér.

Munu græn­ingj­arnir taka við?

En hverjir munu leiða þá breyt­ingu á hinum póli­tíska vett­vangi? Styrmir bendir á að „græn­ingj­arn­ir“ hafi verið að styrkja stöðu sína veru­lega í sumum Evr­ópu­löndum og hér á Íslandi heyr­ist jafn­vel raddir um að til geti orðið ný póli­tísk hreyf­ing græn­ingja vegna þess að VG sé líka að sumra mati á góðri leið með að missa tengslin við þann upp­runa sinn ekki síður en tengslin við bar­áttu alþýð­unnar á síð­ustu öld fyrir bættum kjör­um.

Svo geti verið að hinir hefð­bundnu flokk­ar, sem sinnt hafa umhverf­is­málum minna en efni hafa staðið til, vakni upp við vondan draum og lagi sig að breyttum aðstæð­um.

Fram­tíðin í höndum Gretu Thun­berg okkar tíma

En hann telur þetta ekki ein­ungis snú­ast um flokkapóli­tík. „Lofts­lags­málin munu verða okkur hér á þess­ari eyju hvatn­ing til að verða sjálfum okkur nóg í rík­ara mæli en fram að þessu vegna þess að einn þáttur í að bregð­ast við lofts­lags­breyt­ingum er ein­fald­lega að það verður betri kostur að fram­leiða marg­vís­legan varn­ing og neyzlu­vörur hér heima fyrir en flytja þær til Íslands með þeim kostn­aði, sem því fylgir m.a. vegna lofts­lags­breyt­inga af þeim sök­um,“ skrifar Styrm­ir.

Hann segir lofts­lags­breyt­ingar vera veru­leika, „sem við komumst ekki hjá að horfast í augu við“. Þeir sem á síð­ustu ára­tugum hafi reynt að gera lítið úr þeim vanda­mál­um, muni enda sem hjáróma radd­ir.

Styrmir telur jafn­framt að þær stjórn­mála­hreyf­ing­ar, sem taka ekki eftir því sem er að ger­ast í heim­inum og bregð­ast þess vegna ekki við, muni hverfa af sjón­ar­svið­inu. Fram­tíðin verði í höndum Gretu Thun­berg okkar tíma.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent