Starfsfólk ráðuneytanna ólíklegt til að tilkynna #metoo-mál

Skýrsla um #metoo og Stjórnarráð Íslands sem vinnustað var kynnt í ríkisstjórn í gærmorgun.

Metoo - Stjórnarráðið
Auglýsing

Skýrsla um #metoo og Stjórn­ar­ráð Íslands sem vinnu­stað var kynnt í rík­is­stjórn í gær­morgun en skýrslan var unnin af stýri­hópi um heild­stæðar úrbætur að því er varðar kyn­ferð­is­legt ofbeldi. Frá þessu er greint í frétt for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. 

Nið­ur­staða athug­unar stýri­hóps­ins er að öll ráðu­neyti séu fær um að bregð­ast við kyn­ferð­is­legri og kyn­bund­inni áreitni þangað til hún kemur upp. Í skýrsl­unni segir að með þessu sé átt við að almennt séu fyrir hendi þeir verk­ferlar sem kveðið er á um í lögum og reglum um vinnu­vernd og starfs­fólk fær reglu­lega tæki­færi til að kynna sér þá ferla og um leið hvert það getur leitað ef mál kemur upp. Aftur á móti þyrftu ráðu­neytin að standa betur að gerð áhættu­mats og þá með til­liti til and­legra og félags­legra þátta, og byggja bæði for­varnir og fræðslu á slíku mati.

Hvatn­ing ekki borið til­skildan árangur

Ráðu­neytin hafa brugð­ist við nið­ur­stöðum kann­ana um áreitni eftir því sem við á, sam­kvæmt skýrslu­höf­und­um. „Nið­ur­stöður hafa verið kynntar á starfs­manna­fundum og í þeim til­fellum þar sem áreitni hefur mælst hafa starfs­menn verið hvattir til að koma með slík mál upp á yfir­borð­ið. Sú hvatn­ing hefur á hinn bóg­inn, að því er vitað er, ekki borið til­skildan árangur og svo virð­ist sem starfs­fólk sé ólík­legt til að til­kynna mál sem koma upp. Í þessu sam­bandi hefur verið bent á að þótt leita megi til ólíkra aðila innan hvers ráðu­neyt­is, komi það oft­ast í hlut sömu ein­stak­linga eða ein­stak­lings að fjalla um mál,“ segir í skýrsl­unni.

Auglýsing

Í skýrsl­unni eru lagðar til eft­ir­far­andi aðgerð­ir:

  1. Skipað verði óháð fagráð, sem hafi það hlut­verk að taka við, meta og fara með til­kynn­ingar og ábend­ingar sem því ber­ast um ein­elti, kyn­bundna áreitni, kyn­ferð­is­lega áreitni eða ofbeldi.
  2. End­ur­skoðun á Stefnu og áætlun Stjórn­ar­ráðs­ins gegn ein­elti, kyn­ferð­is­legri áreitni og kyn­bund­inni áreitni, ofbeldi og annarri ótil­hlýði­legri hátt­semi verði fram haldið og skerpt verði á verk­ferlum í til­fellum þar sem und­ir­stofn­anir leita ráða um máls­með­ferð.
  3. Stjórn­ar­ráðs­dag­ur­inn 2019 verði helg­aður #metoo.
  4. Gert verði átak í að efla fræðslu og umræðu til að byggja upp vinnu­staða­menn­ingu þar sem kyn­ferð­is­leg og kyn­bundin áreitni og ofbeldi fær ekki að líð­ast. Jafn­rétt­is­stofu verði falið að taka saman yfir­lit yfir fræðslu­efni sem þegar er til og að útbúa fræðslu­pakka til þriggja ára sem ráðu­neytin geta nýtt sér. Þá verði Jafn­rétt­is­stofu falið að gera til­lögu um bætta fræðslu fyrir nýliða innan Stjórn­ar­ráðs­ins.
  5. Kann­aður verði fýsi­leiki þess að útbúa Jafn­rétt­is­skref fyrir starf­semi vinnu­staða, sam­bæri­leg Grænu skref­unum um vist­vænan rekst­ur.
  6. Ráðu­neytin tryggi að jafn­rétt­is­full­trúar hafi for­send­ur, burði og svig­rúm til að sinna þeim mik­il­vægu verk­efnum sem á borði þeirra eru.

Fólk velur að láta sem ekk­ert hafi í skorist

Enn fremur kemur fram í skýrsl­unni að konur séu meiri­hluti starfs­fólks innan Stjórn­ar­ráðs­ins. Þrátt fyrir það séu karlar lík­legri til að gegna stjórn­enda­stöð­um. Karllæg vinnu­staða­menn­ing virð­ist ekki algeng innan Stjórn­ar­ráðs­ins en ekki þurfi nema einn eða tvo starfs­menn til að spilla starfsand­an­um, til að mynda með óvið­eig­andi athuga­semdum á kaffi­stofu eða óvið­ur­kvæmi­legri hegðun á starfs­manna­skemmt­un­um. Starfs­fólk og stjórn­endur virð­ast almennt ekki vel búin undir að takast á við slíkt í almennum störf­um, og lík­leg­ast virð­ist að fólk velji að láta sem ekk­ert hafi í skorist.

Hægt er að lesa skýrsl­una hér. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent