Þórhildur Sunna sættir sig ekki við niðurstöðu siðanefndar

Þingflokksformaður Pírata segir að fái niðurstaða siðanefndar að standa séu skilaboðin til okkar allra þau að það sé verra að benda á vandamálin en að vera sá sem skapar þau.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata.
Auglýsing

„Siða­nefnd Alþingis telur alvar­legra að benda á sam­trygg­ingu og sjálftöku heldur en að taka þátt í leikn­um. Ég sætti mig ekki við það og mun nýta minn and­mæla­rétt til þess að fá þessu hnekkt,“ segir Þór­hildur Sunna Ævars­dótt­ir, þing­flokks­for­maður Pírata, í stöðu­upp­færslu á Face­book-­síðu sinni rétt í þessu. 

Eins og fram kom í fréttum í morgun þá telur siða­nefnd Alþingis að ummæli Þór­hildar Sunnu, sem hún lét falla þann 25. febr­­úar 2018 um akst­urs­greiðslur þings­ins til Ásmundar Frið­riks­son­ar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafi ekki verið í sam­ræmi við siða­­reglur fyrir alþing­is­­menn.

Þór­hildur Sunna segir að fái þessi nið­ur­staða að standa séu skila­boðin til okkar allra þau að það sé verra að benda á vanda­málin en að vera sá sem skapar þau. „Ég er alger­lega búin að fá nóg af slíkri með­virkn­i,“ segir hún.

Auglýsing

Ás­mundur óskaði eftir því við for­­sæt­is­­nefnd þann 10. jan­úar síð­­ast­lið­inn að tekið væri til skoð­unar hvort þing­­menn Pírata Björn Leví Gunn­­ar­s­­son og Þór­hildur Sunna Ævar­s­dóttir hefðu með ummælum sínum á opin­berum vett­vangi um end­­ur­greiðslur þings­ins á akst­­ur­s­­kostn­aði Ásmundar brotið í bága við siða­regl­­urn­­ar.

Nið­­ur­­staða siða­­nefndar er sem fyrr segir að ummæli Þór­hildar Sunnu frá 25. febr­­úar 2018 séu ekki í sam­ræmi við a- og c-lið 1. mrg. 5. gr. og 7 gr. siða­reglna fyrir alþing­is­­menn. Í þeim segir að alþing­is­­menn skuli sem þjóð­­kjörnir full­­trúar rækja störf sín af ábyrgð, heil­indum og heið­­ar­­leika, ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með fram­komu sinni. Þing­­menn skuli í öllu hátt­erni sínu sýna Alþingi, stöðu þess og störfum virð­ingu.

Siða­­nefnd kemst aftur á móti að þeirri nið­­ur­­stöðu að ummæli Björns Levís hafi ekki brotið í bága við siða­regl­­urn­­ar.

Siða­nefnd Alþingis telur alvar­legra að benda á sam­trygg­ingu og sjálftöku heldur en að taka þátt í leikn­um. Ég sætti mig...

Posted by Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir on Fri­day, May 17, 2019


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent