Lífeyrissjóðirnir búnir að kaupa Innergex út úr HS Orku

Félag í eigu 14 íslenskra lífeyrissjóða hefur keypt 53,9 prósent hlut í HS Orku á 37,3 milljarða króna. Það mun að öllum líkindum eignast allt hlutafé í HS Orku. Að minnsta kosti um stund.

Aðkomu Ross Beaty, sem verið hefur stjórnarformaður HS Orku undanfarin ár, að fyrirtækinu fer senn að ljúka.
Aðkomu Ross Beaty, sem verið hefur stjórnarformaður HS Orku undanfarin ár, að fyrirtækinu fer senn að ljúka.
Auglýsing

Jarð­varmi slhf, félag í eigu 14 íslenska líf­eyr­is­sjóð, hefur keypt hlut Inn­ergex í HS Orku á 299,9 millj­ónir dali, eða 37,3 millj­arða króna á núvirði. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá Inn­ergex til kanadísku kaup­hall­ar­innar í dag.

Inn­ergex hefur þar með selt sænsku félagið Magma Sweden til Jarð­varma en Magma á 53,9 pró­sent hlut í félag­inu. Með kaup­unum mun Jarð­varmi verða eig­andi allra hluta í HS Orku, eina íslenska orku­fyr­ir­tæk­inu sem er í einka­eigu eftir að hafa gengið inn í sölu á hlut fjár­fest­ing­ar­sjóðs­ins ORK fyrr á þessu ári.

Við­búið er þó að Jarð­varmi selji hluta þess sem félagið hefur keypt til breska félags­ins Ancala Partners, sem sér­hæfir sig í inn­viða­fjár­fest­ingum í Evr­ópu og er að stóru leyti fjár­magnað af breskum líf­eyr­is­sjóð­um. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans stendur til að ljúka þeirri vinnu fyrir lok maí­mán­aðar og er talið lík­legt að um helm­ingur hluta­fjár í HS Orku verði áfram­seldur til  Ancala.

Auglýsing
Jarðvami hefur samt sem áður tögl og hagldir í þróun HS Orku að óbreyttu. Þegar félagið keypti sig upp­haf­lega inn í fyr­ir­tækið þá tryggði það sé ríka minni­hluta­vernd og form­lega aðkomu að öllum meiri­háttar ákvörð­unum á vegum HS Orku. Það sam­komu­lag felur því í sér neit­un­ar­vald gagn­vart öllum stórum ákvörð­un­um.

Því neit­un­ar­valdi hefur Jarð­varmi beitt áður, þegar fjár­fest­ing­ar­sjóð­ur­inn Black­stone hugð­ist kaupa 30 pró­sent hlut HS Orku í Bláa lón­inu á 95 millj­ónir evra, um 12,9 millj­arða króna á núvirði, sum­arið 2017. Sú ákvörðun var ekki vin­sæl á meðal stjórn­enda meiri­hluta­eig­enda HS Orku á þeim tíma.

Aðkomu Beaty fer að ljúka

Með söl­unni á Magma Energy Sweden til Jarð­varma lýkur ára­tuga­langri, og um tíma afar umdeildri, aðkomu Kanada­manns­ins Ross Beaty og fyr­ir­tækja sem hann hefur komið að að þessu þriðja stærsta orku­fyr­ir­tæki lands­ins.

Beaty, sem hefur verið stjórn­ar­for­maður HS Orku árum sam­an, leiddi upp­kaup sænska skúffu­fyr­ir­tæk­is­ins Magma Energy Sweden á hlutum í HS Orku á árunum 2009 og 2010. Þrátt fyrir mik­inn póli­tískan mót­þróa, og umræður um hvort ríkið gæti gengið inn í kaupin eða komið í veg fyrir þau á annan hátt, þá náði hann að kaupa alls 98,53 pró­sent hlut í orku­fyr­ir­tæk­inu á alls um 33 millj­arða króna.

Miðað við verð­mið­ann sem er á söl­unni til Jarð­varma þá er heild­ar­virði HS Orku nú um 69 millj­arðar króna. Fyr­ir­tækið hefur því reynst ágætis fjár­fest­ing fyrir þá sem keyptu það á sínum tíma.

Fyr­ir­tæki Beaty fór síðan í gegnum sam­ein­ingar og end­aði undir hatti Inn­ergex, sem gekk frá söl­unni á hlut sínum í HS Orku í dag. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent