Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, sendir baráttukveðjur til þeirra alþingismanna sem talað hafa fyrir því að neita að samþykkja þriðja orkupakkann. Þetta kemur fram í stöðuuppfærslu hans á Facebook í dag.
„Ég sendi baráttukveðjur til þeirra þingmanna sem standa vaktina fyrir mig og börnin mín, dag og nótt, við algjörlega óviðunnandi og ómannúðlegar aðstæður, á vinnutíma sem varla getur talist boðlegur í nútíma samfélagi, í því að koma í veg fyrir að 3 Orkupakkinn verði samþykktur,“ skrifar hann.
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, sleit þingfundi klukkan rúmlega níu í morgun. Þá hafði fundur staðið frá klukkan hálf fjögur í gær og farið alfarið í umræðu um þriðja orkupakkann. Steingrímur bað þingmenn Miðflokksins til að íhuga framhaldið og hvatti þá til að takmarka eða draga úr ræðuhöldum sínum svo hægt væri að ljúka umræðunni og hleypa öðrum málum á dagskrá.
Skorar á ríkisstjórnina að fresta málinu fram á haust
„Ég vil koma á framfæri þakklæti fyrir staðfestu þeirra í þessu máli sem varðar svo mikla hagsmuni fyrir þjóðina og afkomendur okkar,“ segir Ragnar Þór enn fremur á Facebook.
Hann skorar á ríkisstjórnina að fresta málinu fram á haust og biður um að þjóðin fái andrými til að kynna sér málið betur.
„Við kjósendur hljótum að geta gert þá kröfu þegar svo stór og umdeild mál, er snúa að auðlindum þjóðarinnar og grunnstoðum samfélagsins, eru til umfjöllunar og hafa ekki fengið efnislega umræðu í aðdraganda kosninga.
Okkur getur varla legið svo mikið á að ekki megi slá þessu á frest til haustsins,“ segir hann.
Ég sendi baráttukveðjur til þeirra þingmanna sem standa vaktina fyrir mig og börnin mín, dag og nótt, við algjörlega...
Posted by Ragnar Þór Ingólfsson on Friday, May 24, 2019