Sáttaviðræðum ekki formlega lokið

Forsætisráðuneytið telur að sáttaviðræður við fyrrum sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu og aðstandendur þeirra sé ekki formlega lokið.

Katrín Jakosbsdóttir, forsætsiráðherra.
Katrín Jakosbsdóttir, forsætsiráðherra.
Auglýsing

For­sæt­is­ráðu­neytið hefur ekki fengið skila­grein frá nefnd sem skipuð var til að leiða fyrir hönd stjórn­valda sátta­við­ræður við fyrrum sak­born­inga í Guð­mund­ar- og Geir­finns­mál­inu sem sýkn­aðir voru með dómi Hæsta­réttar í fyrra. Ráðu­neytið lítur því hvorki svo á að sátta­við­ræðum sé form­lega lokið né hlut­verki sett rík­is­lög­manns. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­in­u. 

Náði ekki sam­komu­lagi við sátta­nefnd­ina

­Grein­t var frá því fyrr í dag að Guð­jón Skarp­héð­ins­­son, einn þeirra sem sýkn­aður var í Guð­mund­ar- og Geir­finns­mál­inu, hafi ekki náð sam­komu­lagi við sátta­­nefnd stjórn­­­valda varð­andi miska- og skaða­bæt­­ur. Ragn­­ar Að­al­­steins­­son, lög­maður Guð­jóns, sagði í sam­tali við frétta­stofu RÚV í dag að fyrst ríkið virð­ist ekki vilja ná sáttum þá séu næstu skref að und­ir­búa mál­sókn.

Ragnar krafð­ist miska­bóta upp á rúman millj­arðs fyrir hönd ­skjól­stæð­ings síns en Ragnar segir að sátta­nefndin hafi ver­ið að ræða tölur á bil­inu 120 til 150 millj­ónir króna. Hann tók það þó fram að ekk­ert form­legt til­boð hafi komið frá sátta­nefnd­inni.

Auglýsing

Í Frétta­blað­inu í dag var greint frá því að Andri Árna­­son, settur rík­­is­lög­­maður í mál­inu, sé hins vegar ekki búin að taka for­m­­lega afstöðu til kröfu Guð­jóns en þar sem ekki var gengið að henni við borð sátta­­nefndar þá segir blaðið að ólík­­­legt sé að henni verði annað en hafn­að.

Breið sátt eða við­ræður við hvern og einn

Í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu segir að þar sem ráðu­neytið hafi ekki fengið skila­grein frá sátta­nefnd­inni þá líti ráðu­neytið svo á að sátta­við­ræðum sé ekki form­lega lokið né hlut­verki setts rík­is­lög­manns. Í til­kynn­ing­unni er tekið fram að nefnd­inni og rík­is­lög­manni var falið að ljúka mál­inu annað hvort á grund­velli breiðrar sáttar eða við­ræðna við hvern og einn sem sýkn­aðir voru eða aðstand­endur þeirra.

Ekki hefur komið fram hvort að nið­ur­staða sé komin í mál hinna máls­að­il­anna, ­Tryggva Rúnar Leifs­son, Sæv­ar Ciesi­el­ski, Albert Klan Skafta­son og Krist­ján Viðar Júl­í­us­son, ­sem einnig voru sýkn­aður í Hæsta­rétti síð­asta haust. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent