Birgir Jónsson hefur verið ráðinn nýr forstjóri Íslandspósts og hefur þegar tekið til starfa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Ingimundur Sigurpálsson, fyrrverandi forstjóri Íslandspósts, sagði starfi sínu lausu sem forstjóri þann 15. mars síðastliðinn eftir fjórtán ára starf.
Í tilkynningunni segir að Birgir hafi víðtæka stjórnunar- og rekstrarreynslu í atvinnulífinu hér heima og erlendis, síðast sem framkvæmdastjóri Póstmiðstöðvarinnar en þar á undan hafi hann verið forstöðumaður mannauðslausna hjá Advania. Þá muni margir eftir Birgi sem fyrrverandi trommuleikara þungarokkshljómsveitarinnar Dimmu.
Birgir lærði prentun á Íslandi, lauk BA-gráðu í prent- og útgáfustjórnun frá London Institute og MBA-prófi frá Westminster University í London.
„Ég er þakklátur fyrir það mikla traust sem stjórn Íslandspósts sýnir mér. Það er mikið ábyrgðarhlutverk að leiða Íslandspóst sem þjónar mikilvægum almannahagsmunum. Ljóst er að stór og krefjandi verkefni bíða. Ég hlakka til að takast á við þau og vinna með því góða fólki sem starfar hjá Íslandspósti um land allt,“ segir Birgir við tilefnið.