Fulltrúar atvinnulífsins og stjórnvalda skrifuðu í dag undir samkomulag um samstarfsvettvang um loftslagsmál og grænar lausnir. Markmið vettvangsins er að bæta árangur Íslands í loftlagsmálum og miðla fjölbreyttu framlagi landsins á því sviði. Þar á meðal er að stjórnvöld og atvinnulífið vinni í sameiningu að markmiði stjórnvalda um kolefnishlutlaust Ísland árið 2040.
Skynja vilja íslensk atvinnulífs til að gera betur
Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu kemur fram að helstu verkefni vettvangsins séu meðal annars kynning á fjölbreytti framlagi Íslands til loftslagsmála til þessa sem og markmið og stefnu til framtíðar. Þar á meðal verði miðlað íslenskum lausnum varðandi nýtingu endurnýjanlegrar orku. Auk þess verði vettvangur notaður til að styðja við markaðs- og viðskiptaþróunarstarf fyrirtækja tengt loftslagsmálum. Að lokum eigi vettvangurinn að tryggja virkt samstarf stjórnvalda og atvinnulífs um aðgerðir í loftslagsmálum, þar með talið um kolefnishlutleysi árið 2040.

Unnur Brá og Sigurður formenn vettvangsins
Fjöldi fyrirtækja og samtaka standa að samstarfsvettvanginum en á meðal stofnaðila eru Orkuveita Reykjavíkur, Landsvirkjun, Rio Tinto á Íslandi, forsætisráðuneytið, umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Samtök atvinnulífsins og Bændasamtök Íslands. Í tilkynningu Stjórnarráðsins kemur jafnframt fram að fyrirtækjum, samtökum og stofnunum sem láta sig þessi mál varða sé velkomið að gerast aðilar að samstarfsvettvangnum í framhaldinu.
Unnur Brá Konráðsdóttir, aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar, er formaður vettvangsins ásamt Sigurði Hannessyni, framkvæmdastjóra Samtaka Iðnaðarins. Sigurður segir að samstarfsvettvangurinn sé mikið fagnaðarefni en hann segir að án samstarfs atvinnulífs og stjórnvalda í loftslagsmálum sé ekki hægt að ná tilætluðum árangri.
