Enn stendur yfir fundur á Alþingi en hann hófst klukkan hálf ellefu í gærmorgun. Í dag er tíundi dagurinn sem síðari umræðan um þriðja orkupakkann á sér stað á þinginu. Ræður, andsvör og svör við andsvörum um málið hafa staðið í yfir 120 klukkustundir og hafa þingmenn Miðflokksins talað stóran hluta þess tíma. Forseti Alþingis hefur skorað á þingmenn að hætta málþófi um málið en hann tilkynnti jafnframt í gær að starfsáætlun þingsins hafi verið felld úr gildi.
Koma í veg fyrir frekari röskun á starfi þingsins
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, sagði við upphaf þingfundar í gær að starfsáætlun þingsins yrði tekin úr sambandi að afloknum eldhúsdegi í dag. Samkvæmt starfsáætluninni var gert ráð fyrir þingslitum 5. júní en Steingrímur sagði að nú virðist ljóst að svo verði ekki
Steingrímur benti á að fjölmörg mál væru á dagskrá þingsins en síðustu daga hefur umræða Miðflokksmanna um þriðja orkupakkann tekið yfir öll störf á þinginu. Hann benti á að umræður um þriðja orkupakkann hafi nú staðið yfir 100 klukkustundir og þar af hafi einn og sami flokkurinn talað í yfir 90 klukkustundir í því máli, Steingrímur sagði að æskilegt væri að þeirri umræðu færi að ljúka til að hægt væri að hefja umræðu um önnur mál og til að koma í veg fyrir frekari röskun á starfi þingsins.
Ræður og andsvör Miðflokksins um málið eru yfir 2000 talsins í síðari viku umræðunnar. Þingmenn Miðflokksins vilja fresta málinu og vísa því aftur til sameiginlegu EES-nefndarinnar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir að umræðan snúist um efnisatriði og sé því ekki málþóf. Hins vegar vanti svör stuðningsmanna orkupakkans.
„Í fyrsta lagi er nú spurning hvort að það sé hægt að skilgreina þetta sem málþóf, annars vegar í ljósi þess að við erum raunverulega að tala um málið, efnisatriði þess og kryfja þau og hitt er við erum ekki að biðja um neitt fyrir það að hætta eins og menn gera jafnan í málþófi,“ sagði Sigmundur Davíð í samtali við RÚV. Hann segir að flokkur hans muni tala áfram á meðan engin svör berist og kryfja málin sjálf.
Ofbeldi og vanlíðan að geta ekki sinnt þingstörfum
Flokkur fólksins hefur einnig lagst gegn samþykkt þriðja orkupakkans en formaður flokksins segir hins vegar að nú sé nóg komið, mörg mikilvægari mál bíði afgreiðslu þingsins. „Það þýðir ekki í nafni lýðræðis að láta lítinn minnihluta haga sér eins og við höfum þurft að þola hér allan þennan tíma og finna, í rauninni hef ég ekki upplifað neitt annað í minni tilfinningu heldur en ofbeldi og vanlíðan yfir því að geta ekki sinnt þeim störfum sem ég var hér kosin til þess að fylgja,“ sagði Inga Sæland á Alþingi í gær
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir þingflokksformaður Vinstri grænna, hefur einnig kallað eftir því málþófi Miðflokksmanna fari að ljúka. „Ég held að við getum öll verið sammála um það að þetta málþóf Miðflokksmanna er komið út yfir öll velsæmismörk og stöðvar hér framgang eðlilegrar vinnu í þinginu, er þinginu ekki til sóma og heldur ekki þeim Miðflokksmönnum.“
Búið að ræna völdum um stundarsakir
Steingrímur segir í samtali við Fréttablaðið í dag að það sé augljóst að búið sé að ræna völdum á Alþingi um stundarsakir. „Ég hef áður beðið þingflokk Miðflokksins að láta staðar numið og vonast til að sú verði raunin. Þetta er algjört einsdæmi, að einn þingflokkur skuli halda uppi svona málþófi.“
Sigmundur Davíð segist hins vegar vera ósammála því að Miðflokkurinn hafi tekið völdin á þingi og segir það hálf einkennilega túlkun hjá Steingrími þar sem hann fari sjálfur með dagskrávaldið. „Við höfum margoft boðið honum að taka önnur mál fram fyrir og ljúka þeim. Við erum öll af vilja gerð til að láta þingstörfin ganga vel,“ segir Sigmundur í samtali við Fréttblaðið í dag.
Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður VG, segir að í stöðuuppfærslu á Facebook að þetta sé fullkomið dæmi um þá rökleysu sem Sigmundi Davíð sé tamt að setja fram. „Hann hafnar þessu öllu og fullyrðir að forseti hafi dagskrárvaldið, en þó bara til þess að gera það sem Sigmundur Davíð vill, að taka önnur mál fram fyrir, en ekki til annars Þetta eru rök þess sem reynir að kúga en getur ekki gengist við því heldur felur það í því að sá sem hann reynir að kúga hafi val, en viðurkennir um leið (án þess kannski að gera sér grein fyrir því) að valið snúist bara um að gera það sem kúgarinn vill. Hann bítur síðan höfuðið af skömminni með því að kalla þessa sameiginlegu sjálfshólsorgíu góða umræðu og segja að það gæti flýtt umræðunni að aðrir tækju þátt í henni og veittu þeim svör.“
Kolbeinn segir þetta í raun snúast um að búa til pólitíska stöðu fyrir Sigmund Davíð. „Allt snýst þetta um að búa til pólitíska stöðu fyrir Sigmund Davíð, eins og raunar allt annað sem hann gerir. Svo er það falið í fagurgala.“
Satt og rétt hjá forseta. Þarna birtist síðan fullkomið dæmi um þá rökleysu sem Sigmundi Davíð er tamt að setja fram....
Posted by Kolbeinn Óttarsson Proppé on Wednesday, May 29, 2019