Sex prósent ungmenna á Íslandi hvorki í námi, vinnu né starfsþjálfun

Hlutfall ungmenna sem ekki eru í námi, vinnu eða starfsþjálfun hefur sveiflast á undanförnum árum. Ísland stendur vel að vígi samanborið við önnur Evrópulönd.

1. maí 2019 - Hópur af fólki
Auglýsing

Um 2400 ung­menni, þ.e. um sex pró­sent ung­menna á Íslandi, á aldr­inum 16-24 ára voru hvorki í námi, vinnu né starfs­þjálfun árið 2018. Hlut­fallið er lágt sam­an­borið við önnur Evr­ópu­ríki. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Hag­stof­unnar.

Bent er á í til­kynn­ing­unni að Alþjóð­lega vinnu­mark­aðs­stofn­unin (ILO) telji hóp­inn vera í sér­stakri hættu á félags­legri ein­angrun og skorti á efn­is­legum gæðum þar sem ung­mennin hljóti ekki menntun eða þjálfum jafn­framt sem þau afli sér ekki tekna.

Auglýsing
Hlutfall ung­menna á Íslandi sem til­heyrir þessum hópi hefur sveifl­ast tölu­vert síð­ast­lið­inn ára­tug. Árið 2008 til­heyrðu undir fimm pró­sent ung­menna þessum áhættu­hópi en hækk­aði árið 2009 í 8,3 pró­sent ung­menna. Hlut­fallið hélst hátt næstu árin eftir hrun. Í til­kynn­ing­unni segir að hlut­fall ung­menna sem ekki eru í vinnu, námi eða starfs­þjálfun nú og fyrir hrun sé svip­að.

Hlut­fallið með því lægsta í Evr­ópu

Ein­ungis tvö Evr­ópu­ríki hafa lægra hlut­fall ung­menna sem ekki eru í námi, vinnu eða starfs­þjálfun, þ.e. Nor­egur og Hol­land. Annað er uppi á ten­ingnum fyrir Tyrk­land, Norð­ur­-Ma­kedóníu og Ítal­íu. Hlut­fallið í Tyrk­landi nær 24,4 pró­sent ung­menna, Norð­ur­-Ma­kedóníu 24,1 pró­sent ung­menna og Ítalíu tæp 20 pró­sent ung­menna.

Frá árinu 2013 hefur bilið á milli karla og kvenna án vinnu, náms eða starfs­þjálfun á Íslandi auk­ist og stóð í 6,4 pró­sent meðal karla en 8,5 pró­sent meðal kvenna árið 2018. Mun­ur­inn á milli kynja var minnk­aði hins vegar á árunum 2003-2008. Á vef Hag­stof­unnar er mun­ur­inn skýrður á þann veg að konur á aldr­inum 20-34 ára séu frekar utan vinnu­mark­aðar en ungir karl­ar. Mögu­lega sé það vegna þess að ungar konur taki frekar fæð­ing­ar­or­lof áður en þær byrji í starfi, þær séu frekar öryrkjar, tíma­bundið ófærar til vinnu og lík­legri til að vera heima­vinn­andi. Engu að síður er kynja­mun­ur­inn minni en í öðrum ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins þar sem með­al­talið er 8,7 pró­sentu­stiga munur á milli kynja.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent