Segir dóm Mannréttindadómstólsins vera fullnaðarsigur

Ólafur Ólafsson segir að niðurstaða Mannréttindadómstólsins sýni fram á að hann hafi ekki notið réttlátrar málsmeðferðar og úrlausnar fyrir óvilhöllum dómstólum.

Ólafur Ólafsson
Ólafur Ólafsson
Auglýsing

Ólafur Ólafs­son, einn sak­born­inga í Al Than­i-­mál­inu svo­kall­aða og einn stærsti eig­andi Kaup­þings fyrir hrun, segir að nið­ur­staða Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins sýni fram á að hann hafi ekki notið rétt­látrar máls­með­ferðar og úrlausnar fyrir óvil­höllum dóm­stól­um, sem sé einn af horn­steinum rétt­ar­rík­is­ins. Frá þessu greinir hann í til­kynn­ingu sem hann sendi fjöl­miðlum í kjöl­far nið­ur­stöð­unnar í morg­un.

Fram hefur komið í fjöl­miðlum að Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evr­ópu hafi kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að hæsta­rétt­­ar­­dóm­­ar­inn Árni Kol­beins­­son hafi ekki verið óhlut­­drægur í Al-T­hani mál­inu.

„Þetta stað­festir athuga­semdir sem ég hef gert við með­ferð máls­ins á öllum stigum þess; íslenskir dóm­arar hafa ekki gætt að hæfi sínu og setið í dómi þar sem vafi leikur á hlut­leysi þeirra. Í við­leitni til að sanna sak­leysi mitt hef ég ítrekað rek­ist á veggi þar sem sam­tvinnuð hags­muna­gæsla óskil­greindra afla í dóms­kerf­inu hefur komið í veg fyrir að hægt væri að leiða hið sanna í ljós. Feg­urðin við Ísland felst meðal ann­ars í fámenn­inu en við þær aðstæður verður sér­stak­lega að gæta að hlut­leysi í við­kvæmum málum vegna náinna tengsla í litlu sam­fé­lagi. Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn stað­festir að það er sann­ar­lega brot á mann­rétt­indum þegar van­hæfur dóm­ari situr í dómi. Þetta er fulln­að­ar­sig­ur,“ segir Ólaf­ur.

Auglýsing

Í Al Than­i-­­­mál­inu voru þrír af æðstu stjórn­­­endum Kaup­­­þings, þeir Hreiðar Már Sig­­­urðs­­­son, Sig­­­urður Ein­­­ar­s­­­son og Magnús Guð­­­munds­­­son ákærðir ásamt Ólafi Ólafs­­­syni, einum stærsta eig­anda bank­ans fyrir hrun, fyrir umboðs­svik, mark­aðs­mis­­­­­notkun og hlut­­­deild í umboðs­svik­­­um.

Mál­inu lauk með dómi Hæsta­réttar þann 12. febr­­­úar 2015 þar sem allir ákærðu voru sak­­­felld­­­ir. Hreiðar Már var sak­­­felldur í öllum ákæru­liðum og dæmdur til 5 og hálfs árs fang­els­is, Sig­­­urður var sak­­­felldur sam­­­kvæmt ákæru hvað varðar mark­aðs­mis­­­­­notkun en fyrir hlut­­­deild í umboðs­svikum og dæmdur til 4 ára fang­els­­­is. Ólafur var sak­­­felldur vegna mark­aðs­mis­­­­not­k­unar en sýkn­aður í ákæru­liðum varð­andi umboðs­­­svik og dæmdur til 4 og hálfs árs fang­elsis og Magnús var sak­­­felldur í öllum ákæru­liðum og dæmdur til 4 og hálfs árs fang­els­­­is.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent