Halldór Blöndal, fyrrverandi alþingismaður Sjálfstæðisflokksins og ráðherra, skrifar til Davíðs Oddssonar, ritstjóra Morgunblaðsins, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Þar gagnrýnir hann Reykjavíkurbréf ritstjórans frá því í síðustu viku en í bréfinu fer Davíð hörðum orðum um Sjálfstæðisflokkinn. Halldór bendir á að bréfaskriftir geti verið hættulegar þar sem þær lýsa því í
hvaða sálarástandi
maður er þá
stundina.
Í bréfinu segir Halldór að verst þykir honum að Davíð hafi haldið því fram í bréfinu að í þriðja orkupakkanum felist framsal á yfirráðum yfir íslenskum orkumarkaði til stofnanna Evrópusambandsins. Halldór segir að ekki sé fótur fyrir þessari fullyrðingu og raun sé það athyglisvert að Davíð skuli setja það fram þar sem samþykkt EES-samningsins hér á landi væri Davíð að þakka.
Gagnrýndi framgöngu flokksins í orkupakkamálinu
Í síðustu viku gagnrýndi Davíð forystu Sjálfstæðisflokksins harkalega í Reykjavíkurbréfi. Í bréfinu fjallaði hann meðal annars um meinta fjarlægð flokksins frá kjósendum sínum og hvernig flokkurinn væri á villigötum þegar að kemur að þriðja orkupakkanum.
Halldór svarar bréfi Davíðs í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag sem ber yfirskriftina „Orð til Davíðs Oddssonar“. Í bréfinu segir Halldór að margir hafi saknað þess að sjá ekki Davíð og Þorsteinn Pálsson, fyrrum formenn Sjálfstæðisflokksins, á 90 ára afmæli flokksins í Valhöll í maí síðastliðnum. Halldór segir afmælishátíðina hafa verið velheppnaða og að hann hafi fundið það glöggt að á meðal sjálfstæðismanna sé mikil ánægja yfir stöðu þjóðmála og forystu flokksins.
„Þrátt fyrir gjaldþrot Wow-air og hrun loðnustofnsins er svigrúm til að bæta lífskjör og lækka skatta. Menn taka eftir því að það er traust milli formanna stjórnarflokkanna, sérstaklega Katrínar Jakobsdóttur og Bjarna Benediktssonar, og skilja af reynslunni að það er forsendan fyrir því, að áfram megi vel takast um stjórn þjóðmála. Saman fer sterk staða þjóðarbúsins, meiri kaupmáttur og jafnvægi í efnahagsmálum,“ segir Halldór.
Bréfaskriftir geti verið hættulegar
Í greininni fjallar Halldór jafnframt um Reykjavíkurbréf Davíðs og bendir hann á að bréfaskriftir geti komið upp um mann. „Bréfaskriftir geta verið hættulegar af því þær koma upp um mann, - lýsa því í hvaða sálarástandi maður er þá stundina. Og auðvitað hefnir það sín, ef illa liggur á manni, - þá miklar maður hlutina fyrir sér og freistast til að fara ekki rétt með,“ segir Halldór. Hann segir að ógætilegt hafi verið hjá Davíð að gera orð Jón Hjaltasonar að sínum en hann segir að það hefði ekki gerst ef betur hefði legið á Davíð.
Halldór segir að mikið af rangfærslum og ósannindum megi finna í grein Jóns sem Davíð leggur út frá í bréfinu. Þar á meðal að forysta Sjálfstæðisflokksins hefði ráðið Már Guðmundsson sem seðlabankastjóra tvisvar. Hann segir að hið rétta sé að Már hafi verið ráðinn í júlí 2009 en þá var vinstri stjórn í landinu.
„Már var síðan endurráðinn eftir auglýsingu 2014 og skipaði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra í stöðuna. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var þá forsætisráðherra og hafði um það að segja. Rétt er að rifja upp, að hann var formaður Framsóknarflokksins í byrjun árs 2009 þegar allur þingflokkur þess flokks greiddi atkvæði með því að breyta lögum um Seðlabankann til þess að losna við þá seðlabankastjóra sem þá voru. Einn þeirra varst þú, Davíð Oddsson,“ bendir Halldór á.
Þjóðin á Davíð að þakka að samningar tókust um Evrópska efnahagssvæðið
Að lokum segir Halldór að athyglisvert sé að Davíð hafi sett fram þá fullyrðingu að í þriðji orkupakkanum felist framsal á yfirráðum yfir íslenskum orkumarkaði. „Margt fellur mér illa í þessu þínu síðasta Reykjavíkurbréfi en verst þó, að þú skulir halda því fram að í þriðja orkupakkanum felist framsal á yfirráðum yfir íslenskum orkumarkaði til stofnana Evrópusambandsins. Það er ekki fótur fyrir þessari fullyrðingu. Og það er raunar athyglisvert, að þú skulir setja hana fram.“
Halldór segir að í raun eigi þjóðin Davíð að þakka að samningar tókust um Evrópska efnahagssvæði og að það hafi verið Davíð sem sannfærði hann og aðra um, að sá samningur rúmaðist innan ákvæða stjórnarskrárinnar. Sömuleiðis fyrsti og annar orkupakkinn. „Þar vannstu gott verk og þarft. Mér liggur meira á hjarta en það verður að bíða næstu greinar sem birtist innan fárra daga ef guð lofar,“ segir Halldór að lokum.