Mesti samdráttur í fjölda ferðamanna frá því að talningar hófust

Launþegum í atvinnugreinum tengdri þjónustu fækkar um fimm prósent milli ára.

Ferðamenn í Leifsstöð
Auglýsing

Fjöldi ferða­manna í maí 2019 er 24 pró­sentum færri miðað við í maí í fyrra. Þeir voru 111 þús­und nú eða 36 þús­und færri en í sama mán­uði í fyrra.  Þetta er mesti sam­dráttur erlendra far­þega og erlendra ferða­manna frá því að taln­ing ferða­manna hóf­st, að því er kemur fram í frétt Hag­stofu Ís­lands. 

Í apríl 2019 var hins vegar næst­mesti sam­dráttur í fjölda ferða­manna innan sama mán­aðar miðað við apríl 2018. Fækk­unin á milli ára nam þá 19 pró­sent­um.

Auglýsing
Í apríl fækk­aði gistin­óttum á hót­elum og gisti­heim­ilum um 4 pró­sent, en um 18 pró­sent á Air­bnb miðað við apríl 2018. Nýt­ing hót­el­her­bergja lækk­aði einnig, eða um 5 pró­sent á milli ára.

Laun­þegum í ferða­þjón­ustu fækkar

Sam­kvæmt Hag­stof­unni fækkar laun­þegum í atvinnu­greinum tengdum ferða­þjón­ustu um fimm pró­sent milli ára, eða úr 27.300 í 25.900. 

Af atvinnu­greinum tengdum ferða­þjón­ustu var mesta fækk­unin í far­þega­flutn­ingum með flugi þar sem fækk­unin nam 18 pró­sentum á milli ára. Fjöldi laun­þega fór þá úr 4.700 í 3.900.

Fækkar um rúm­lega íbúa­fjölda lands­ins milli ára

Búast má við því að fækkun ferða­manna verði við­var­andi út þetta ár. Sam­kvæmt upp­færðri far­þeg­a­spá Isa­via, sem birt var í síð­ustu viku, mun fjöldi erlendra far­þega sem koma til Íslands verða 1.927 þús­und á þessu ári. Það eru 388 þús­und færri far­þegar en komu hingað til lands í fyrra, sem var metár. 

Til sam­an­­burðar voru allir íbúar lands­ins sam­an­lagt 358.780 tals­ins í lok mars síð­­ast­liðn­­­um. Því mun ferða­­mönnum sem sækja Ísland heim fækka um rúm­­lega mann­­fjölda lands­ins milli áranna 2018 og 2019.

Þá mun skiptifar­þegum sem koma til Íslands fækka um 43 pró­­sent milli ára, úr tæp­­lega 3,9 millj­­ónum í tæp­­lega 2,2 millj­­ón­­ir.

Helsta ástæða þessa er gjald­­þrot WOW air 28. mars síð­­ast­lið­inn og óvissa vegna stöð­u ­­Boeing MAX flug­­­véla Icelanda­ir, sem óvíst er hvenær muni kom­­ast aftur í gagn­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent