Félag fréttamanna RÚV fordæmir handtöku Julians Assange harðlega og mótmælir ákvörðun innanríkisráðherra Bretlands um að samþykkja beiðni bandarískra stjórnvalda um framsal hans. Þetta kemur fram í yfirlýsingu félagsins.
Félagið telur enn fremur að framganga Bandaríkjanna í máli Assange sé ógn við frelsi fjölmiðla, en Bandaríkin hafa ákært Assange fyrir landráð.
Vegið að heimildavernd fjölmiðla
„Hætt er við því að mannréttindi Assange verði þar fyrir borð borin þar sem stjórnvöld ganga fram af mikilli og ómaklegri hörku í máli hans. Með ákæru bandarískra stjórnvalda gegn Assange og hugsanlegu framsali Breta á honum til Bandaríkjanna er einnig vegið gróflega að heimildavernd fjölmiðla. Vernd sem hefur verið kveðið skýrt á um í dómi Mannréttindadómstóls Evrópu að sé meðal grunnskilyrða fyrir tjáningarfrelsi fjölmiðla,“ segir í tilkynningunni.
Félagið telur að án slíkrar verndar gætu ýmsir heimildarmenn forðast það að veita fjölmiðlum upplýsingar í málum er varða hagsmuni almennings. Þar af leiðir gæti verið grafið undan eftirlitshlutverki fjölmiðla sem dragi úr möguleikum þeirra til að miðla áreiðanlegum og nákvæmum upplýsingum.
„Lýðræði þrífst ekki án sjálfstæðra fjölmiðla. Sjálfstæðir fjölmiðlar þrífast vart ef stjórnvöld ofsækja uppljóstrara sem koma upplýsingum á framfæri,“ segir enn fremur í tilkynningunni.
Skora á íslensk stjórnvöld
Félag fréttamanna skorar á íslensk stjórnvöld að beita sér fyrir því að Assange verði ekki framseldur til Bandaríkjanna og vísa til þingsályktunar sem samþykkt var á Alþingi um að Ísland ætti að skapa sér sérstöðu varðandi vernd tjáningar- og upplýsingafrelsis.
„Lengi var lítið um efndir en nú hafa verið stigin skref í átt að því að standa við ályktunina þótt að lengra megi og verði að ganga. Félagið skorar á stjórnvöld að starfa í anda þingsályktunarinnar frá 16. júní 2010, innan lands jafnt sem utan, og beita sér fyrir tjáningarfrelsi og upplýsingafrelsi,“ segir í tilkynningunni að lokum.