Íslensk stjórnvöld hafa ekki mótað afstöðu til Beltis og brautar

Kínverski sendiherrann á Íslandi segir íslensk stjórnvöld vera opin fyrir þátttöku í Belti og braut. Íslensk stjórnvöld hafa þó ekki mótað sér afstöðu til verkefnisins.

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra
Auglýsing

Kín­versk stjórn­völd hafa lýst yfir áhuga á und­ir­ritun sam­komu­lags við Ísland um sam­starf undir yfir­skrift „Beltis og braut­ar.“ Íslensk stjórn­völd hafa ekki mótað sér end­an­lega afstöðu til verk­efn­is­ins. Þetta kemur fram í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Belti og braut er alþjóð­legt inn­viða- og fjár­fest­inga­verk­efni kín­verskra stjórn­valda. Sam­starfið gæti aukið kín­verskar fjár­fest­ingar í innviðum lands­ins og jafn­framt aukið við­skipti á milli ríkj­anna. Fram­takið er þó afar umdeilt og hafa banda­rísk stjórn­völd til dæmis gagn­rýnt það harð­lega.

Sendi­herr­ann jákvæður

Í við­tali á Hring­braut þann 12. maí síð­ast­lið­inn, sagði Jin Zhi­ji­an, sendi­herra Kína á Íslandi, að íslensk stjórn­völd væru opin fyrir þátt­töku í Belti og braut. Hann sagði einnig að verk­efnið væri afar árang­urs­ríkt.

Auglýsing
Í svari sínu varð­andi gagn­rýni Banda­ríkj­anna á verk­efn­inu svar­aði Jin því að Belti og braut hafi skapað tæki­færi til fram­þró­un­ar, grænnar þró­unar og að verk­efnið skapi ekki skulda­gildr­ur.

Málið til skoð­unar

Í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins segir að ráðu­neytið hafi haft málið til skoð­unar „í því augna­miði að greina hvað í fram­tak­inu felst og hvað aðild eða teng­ing við það gæti þýtt fyrir íslenska hags­mun­i.“

Utan­rík­is­ráðu­neytið telur að samn­inga­um­hverfi Íslands og Kína vera nú þegar hag­fellt og að það nái til frí­versl­un­ar, mál­efna norð­ur­slóða, vís­inda­sam­starfs, net­við­skipta og jarð­hita. Meg­in­á­hersla íslenskra stjórn­valda sé á fram­kvæmd og fulln­ustu þeirra samn­inga sem fyrir liggja, að því er kemur fram í svari ráðu­neyt­is­ins.

Í svar­inu segir enn fremur að meg­in­inn­tak Beltis og brautar sé „upp­bygg­ing og fjár­fest­ing í innviðum og sam­göngum í sam­starfs­ríkjum Kína. Hafa ein­staka ríki gerst form­legir þátt­tak­endur í fram­tak­inu með gerð tví­hliða sam­starfs­samn­inga, sem samið er sér­stak­lega um. Áherslan hefur þó iðu­lega verið þar á inn­viða­upp­bygg­ingu og fjár­fest­ingar þar að lút­and­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent