Lagafrumvarp Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, um kynrænt sjálfræði var samþykkt á Alþingi í dag. Með samþykkt laganna er staðfestur með lögum réttur einstaklings til að breyta opinberri kynskráningu sinni í samræmi við eigin upplifun og án þess að þurfa að sæta skilyrðum um sjúkdómsgreiningu og læknismeðferð. Frá þessu er greint á vef forsætisráðuneytisins.
Lögin kveða á um rétt einstaklinga til þess að skilgreina sjálfir kyn sitt og miða þannig að því að tryggja að kynvitund þeirra njóti viðurkenningar. Einnig er lögunum ætlað að standa vörð um rétt einstaklinga til líkamlegrar friðhelgi.
Katrín segir við tilefnið að til þess að bæta réttindi fólks í raun og veru þurfi pólitískt þor og pólitískan vilja. „Réttindi fólks eru nefnilega því miður ekki sjálfsögð þótt árin líði eins og við sjáum þegar við horfum á stöðu mannréttinda á alþjóðavettvangi. Nýsamþykkt lög um kynrænt sjálfræði fela í sér mikilvægar breytingar á réttarstöðu hinsegin fólks og með samþykkt laganna skipar Íslands sér í fremstu röð á alþjóðavísu. Mín von er að með samþykkt þessara laga muni þörf umræða vakna í samfélaginu um það hvað þetta merkir og mikilvægi þess að tryggja mannréttindi allra hópa samfélagsins.“
Frumvarpið miðar að því, eins og áður segir, að virða og styrkja sjálfsákvörðunarrétt hvers einstaklings þar sem eigin skilningur á kynvitund er lagður til grundvallar ákvarðanatöku varðandi opinbera skráningu, enda séu aðrir ekki betur til þess bærir. Einnig er lögunum ætlað að standa vörð um rétt einstaklinga til líkamlegrar friðhelgi og verður nú skipaður starfshópur til að tryggja réttarstöðu barna sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni.