Lagafrumvarp um kynrænt sjálfræði samþykkt

Með samþykkt laganna er staðfestur með lögum réttur einstaklings til að breyta opinberri kynskráningu sinni í samræmi við eigin upplifun og án þess að þurfa að sæta skilyrðum um sjúkdómsgreiningu og læknismeðferð.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður VG, lagði frumvarpið fram.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður VG, lagði frumvarpið fram.
Auglýsing

Laga­frum­varp Katrínar Jak­obs­dótt­ur, for­sæt­is­ráð­herra, um kyn­rænt sjálf­ræði var sam­þykkt á Alþingi í dag. Með sam­þykkt lag­anna er stað­festur með lögum réttur ein­stak­lings til að breyta opin­berri kyn­skrán­ingu sinni í sam­ræmi við eigin upp­lifun og án þess að þurfa að sæta skil­yrðum um sjúk­dóms­grein­ingu og lækn­is­með­ferð. Frá þessu er greint á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins.

Lögin kveða á um rétt ein­stak­linga til þess að skil­greina sjálfir kyn sitt og miða þannig að því að tryggja að kyn­vit­und þeirra njóti við­ur­kenn­ing­ar. Einnig er lög­unum ætlað að standa vörð um rétt ein­stak­linga til lík­am­legrar frið­helgi.

Auglýsing

Katrín segir við til­efnið að til þess að bæta rétt­indi fólks í raun og veru þurfi póli­tískt þor og póli­tískan vilja. „Rétt­indi fólks eru nefni­lega því miður ekki sjálf­sögð þótt árin líði eins og við sjáum þegar við horfum á stöðu mann­rétt­inda á alþjóða­vett­vangi. Nýsam­þykkt lög um kyn­rænt sjálf­ræði fela í sér mik­il­vægar breyt­ingar á rétt­ar­stöðu hinsegin fólks og með sam­þykkt lag­anna skipar Íslands sér í fremstu röð á alþjóða­vísu. Mín von er að með sam­þykkt þess­ara laga muni þörf umræða vakna í sam­fé­lag­inu um það hvað þetta merkir og mik­il­vægi þess að tryggja mann­rétt­indi allra hópa sam­fé­lags­ins.“

Frum­varpið miðar að því, eins og áður seg­ir, að virða og styrkja sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt hvers ein­stak­lings þar sem eigin skiln­ingur á kyn­vit­und er lagður til grund­vallar ákvarð­ana­töku varð­andi opin­bera skrán­ingu, enda séu aðrir ekki betur til þess bær­ir. Einnig er lög­unum ætlað að standa vörð um rétt ein­stak­linga til lík­am­legrar frið­helgi og verður nú skip­aður starfs­hópur til að tryggja rétt­ar­stöðu barna sem fæð­ast með ódæmi­gerð kynein­kenni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent