Fjármálaeftirlitið, FME, hefur sent frá sér tilkynningu þar sem minnt er á þær kröfur sem gerðar eru til lífeyrissjóða samkvæmt lögum um starfsemi þeirra.
Er vísað til frétta af því að stéttarfélag hafi það til skoðunar að afturkalla umboð stjórnarmanna sem félagið hefur tilnefnt í stjórn lífeyrissjóðs, en eins og greint var frá á vef Kjarnans í morgun, þá hyggst VR skipta út stjórnarmönnum í Lífeyrissjóði verslunarmanna, vegna óánægju með vaxtaákvarðanir sjóðsins.
Er í tilkynningu FME vísað til laga um lífeyrissjóði, og meðal annars að engir aðrir hagsmunir eigi að ráða för hjá lífeyrissjóðum en hagsmunir sjóðfélaga.
Í tilkynningu FME, sem birt var á vef FME í dag, segir:
„Lífeyrissjóðir veita viðtöku iðgjaldi til greiðslu lífeyris vegna elli, örorku eða andláts og lýtur starfsemi þeirra að móttöku, varðveislu og ávöxtun iðgjalda og greiðslu lífeyris. Lífeyrissjóðum er óheimilt að stunda aðra starfsemi en þá sem nauðsynleg er til að ná framangreindum tilgangi, skv. 20. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, sbr. 2. mgr. 1. gr. sömu laga.
Í 29. gr. laga nr. 129/1997 kemur fram að stjórn lífeyrissjóðs ber ábyrgð á að starfsemi sjóðsins sé í samræmi við nefnd lög, reglugerðir settar samkvæmt þeim og samþykktir sjóðsins. Þá setur stjórn lífeyrissjóðs honum fjárfestingarstefnu, sbr. 1. mgr. 36. gr. nefndra laga og ber við þá vinnu að hafa hagsmuni allra sjóðfélaga að leiðarljósi. Framkvæmdastjóri lífeyrissjóðs ber ábyrgð á því að fjárfestingarstefnu stjórnar sé framfylgt.
Samkvæmt 4. mgr.
44. gr. laga nr. 129/1997 skal Fjármálaeftirlitið hafa eftirlit með því
hvort starfsemi lífeyrissjóðs sé að einhverju leyti óeðlileg, óheilbrigð eða
ótraust. Við mat á framangreindu lítur Fjármálaeftirlitið m.a. til ákvæða laga
nr. 2/1995, um hlutafélög, en í 76. gr. þeirra laga segir: „Félagsstjórn,
framkvæmdastjóri og aðrir þeir er hafa heimild til að koma fram fyrir hönd
félagsins mega ekki gera neinar þær ráðstafanir sem eru fallnar til þess að
afla ákveðnum hluthöfum eða öðrum ótilhlýðilegra hagsmuna á kostnað annarra
hluthafa eða félagsins. Með hliðsjón af
framangreindu telur Fjármálaeftirlitið að stjórnarmönnum lífeyrissjóða sé
óheimilt að beita sér fyrir því að lífeyrissjóðir séu nýttir í öðrum tilgangi
en þeim sem að framan var lýst.“