Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefur ákveðið að verja þrettán milljónum króna til UN Free & Equal, sérstaks verkefnis sem skrifstofa mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna (OHCHR) heldur utan um til að vinna að útbreiðslu réttinda hinsegin fólks hvarvetna í heiminum. Þetta kemur fram á vef utanríkisráðuneytisins í dag.
Í frétt ráðuneytisins um málið segir að framlagið sé í samræmi við áherslur Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna en ráðið kemur til síns 41. reglulega fundar á morgun í Genf í Sviss.
Réttindi hinsegin fólks hafi verið meðal helstu áhersluþátta Íslands í mannréttindaráði SÞ en Ísland var fyrir réttu ári kjörið til setu í mannréttindaráðinu. Þannig hafi til dæmis Ísland borið upp fleiri tilmæli en nokkuð annað ríki sem snertu LGBTI-réttindi í allsherjarúttekt á stöðu mannréttindamála í fjórtán aðildarríkjum SÞ í maí síðastliðnum. Auk þess sé réttindum hinsegin fólks iðulega haldið til haga í málatilbúnaði Íslands í ræðum og yfirlýsingum.
Eigum öll að njóta sömu mannréttinda
Guðlaugur Þór segir við tilefnið að hinsegin sambönd teljist enn glæpur í meira en þriðjungi ríkja heims. „Með fjárframlaginu og áframhaldandi áherslu á réttindi hinsegin fólks í mannréttindaráðinu og þróunarsamvinnu leggjum við okkar lóð á vogarskálar í þeirri viðleitni að breyta þessu. Við kunnum að vera ólík, en öll eigum við að njóta sömu mannréttinda.“
Þá kemur fram hjá ráðuneytinu að fjárframlagið sé sömuleiðis í samræmi við nýja stefnu Íslands í þróunarsamvinnu fyrir árin 2019 til 2023, sem Alþingi samþykkti í maí síðastliðnum, og nýrri skýrslu utanríkisráðuneytisins þar sem mörkuð sé sú nálgun að allt starf Íslands í þróunarsamvinnu sé mannréttindamiðað. Ísland fylgist því sérstaklega grannt með stöðu mála hvað varðar réttindi hinsegin fólks í samstarfsríkjum og áhersluríkjum í þróunarsamvinnu.
Jafnréttismál eru efst á dagskrá í komandi fundarlotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna. Sérstakur skýrslugjafi ráðsins um réttindi hinsegin fólks mun taka þátt í umræðum og fyrir liggur ályktunartillaga um framlengingu starfsumboðs hans, en það þótti tíðindum sæta þegar embættið var sett á með ályktun frá mannréttindaráðinu árið 2016.