Þrettán milljónir til stuðnings hinsegin réttinda

Utanríkisráðherra Íslands hefur ákveðið að verja þrettán milljónum króna til UN Free & Equal en hinsegin sambönd teljast enn glæpur í meira en þriðjungi ríkja heims.

gay-pride-69_15377354983_o.jpg
Auglýsing

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra hefur ákveðið að verja þrettán millj­ónum króna til UN Free & Equ­al, sér­staks verk­efnis sem skrif­stofa mann­rétt­inda­full­trúa Sam­ein­uðu þjóð­anna (OHCHR) heldur utan um til að vinna að útbreiðslu rétt­inda hinsegin fólks hvar­vetna í heim­in­um. Þetta kemur fram á vef utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í dag.

Í frétt ráðu­neyt­is­ins um málið segir að fram­lagið sé í sam­ræmi við áherslur Íslands í mann­réttinda­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna en ráðið kemur til síns 41. reglu­lega fundar á morgun í Genf í Sviss.

Rétt­indi hinsegin fólks hafi verið meðal helstu áherslu­þátta Íslands í mann­réttinda­ráði SÞ en Ísland var fyrir réttu ári kjörið til setu í mann­réttinda­ráð­inu. Þannig hafi til dæmis Ísland borið upp fleiri til­mæli en nokkuð annað ríki sem snertu LGBT­I-rétt­indi í alls­herj­ar­út­tekt á stöðu mann­rétt­inda­mála í fjórtán aðild­ar­ríkjum SÞ í maí síð­ast­liðn­um. Auk þess sé rétt­indum hinsegin fólks iðu­lega haldið til haga í mála­til­bún­aði Íslands í ræðum og yfir­lýs­ing­um.

Auglýsing

Eigum öll að njóta sömu mann­rétt­inda

Guðlaugur Þór Þórðarson Mynd: Bára Huld BeckGuð­laugur Þór segir við til­efnið að hinsegin sam­bönd telj­ist enn glæpur í meira en þriðj­ungi ríkja heims. „Með fjár­fram­lag­inu og áfram­hald­andi áherslu á rétt­indi hinsegin fólks í mann­réttinda­ráð­inu og þró­un­ar­sam­vinnu leggjum við okkar lóð á vog­ar­skálar í þeirri við­leitni að breyta þessu. Við kunnum að vera ólík, en öll eigum við að njóta sömu mann­rétt­inda.“

Þá kemur fram hjá ráðu­neyt­inu að fjár­fram­lagið sé sömu­leiðis í sam­ræmi við nýja stefnu Íslands í þró­un­ar­sam­vinnu fyrir árin 2019 til 2023, sem Alþingi sam­þykkti í maí síð­ast­liðn­um, og nýrri skýrslu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins þar sem mörkuð sé sú nálgun að allt starf Íslands í þró­un­ar­sam­vinnu sé mann­rétt­inda­mið­að. Ísland fylgist því sér­stak­lega grannt með stöðu mála hvað varðar rétt­indi hinsegin fólks í sam­starfs­ríkjum og áherslu­ríkjum í þró­un­ar­sam­vinnu.

Jafn­rétt­is­mál eru efst á dag­skrá í kom­andi fund­ar­lotu mann­réttinda­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna. Sér­stakur skýrslu­gjafi ráðs­ins um rétt­indi hinsegin fólks mun taka þátt í umræðum og fyrir liggur álykt­un­ar­til­laga um fram­leng­ingu starfs­um­boðs hans, en það þótti tíð­indum sæta þegar emb­ættið var sett á með ályktun frá mann­réttinda­ráð­inu árið 2016.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent