„Fáránleikinn og samtryggingin kemur til bjargar fyrir elítuna. Ekki fyrir sendiboðann sem bendir á nakta keisarann. Þ.e.a.s. bara fyrir strákinn sem benti, ekki stelpuna.“ Þetta skrifar Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, í stöðuuppfærslu á Facebook-síðu sinni í dag eftir að niðurstaða forsætisnefndar Alþingis var gerð kunngjörð í fjölmiðlum í morgun.
Nefndin hefur fallist á niðurstöður siðanefndar þingsins þess efnis að Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata, hafi brotið gegn siðareglur alþingismanna með ummælum sínum um Ásmund Friðriksson, þingmann Sjálfstæðisflokksins.
„Njótið meðan endist, kæra elíta. Þið blinda, sjálfhverfa og meðvirka fólk. Þið fenguð kjörið tækifæri til þess að sýna að þið eruð traustsins verð en klúðruðuð því margfalt. Til að byrja með í rannsókninni. Svo í tilmælum um að sannleikurinn skiptir ekki máli, að halda ekki samkvæmni á milli sendiboða og að lokum að taka ekki sönsum á lokametrunum þrátt fyrir öll rök og gögn málsins,“ skrifar Björn Leví.
Fann ekkert að akstursgreiðslum Ásmundar þrátt fyrir játningu
Í færslunni segir hann margt í málinu vera galið. Sem dæmi gagnrýnir hann bókun Þorsteins Sæmundssonar, þingmanns Miðflokksins, þar sem segir: „Ómögulegt er einnig að setja þingmenn í þá stöðu að þurfa að kveða upp úr um „sekt“ eða „sakleysi“ kollega sinna. Í því er einnig falinn nokkur freistnivandi eins og þegar hefur komið fram. Brýnt er því að taka núverandi fyrirkomulag til endurskoðunar auk þess sem bæta þarf fyrirliggjandi reglur.“ Björn Leví segir Þorstein dæma sig sekan þrátt fyrir að hann telji ómögulegt að setja þingmann í stöðu dómara.
„Forsætisnefnd fann svo ekkert að akstursgreiðslum Ásmundar þrátt fyrir játningu hans um mögulegt brot og endurgreiðslur vegna þeirra. Enda má ekki komast að sannleiksgildi þess hvort þingmenn svindla á endurgreiðslukerfinu eða ekki en á sama tíma er hægt að dæma fólk fyrir ummæli sem eru bersýnilega sönn – þar sem þau vitna í játningu um mögulegt brot - og að það sé brot á siðareglum að segja að það þurfi að rannsaka hvort um raunverulegt brot sé að ræða.
En nei, það er ekki rannsakað frekar. Endurgreiðsla kom eftir að mögulegt brot uppgötvaðist og þar af leiðandi þarf ekkert að gera. Mér þætti áhugavert hvort búðaþjófar komast upp með að borga bara eða skila vörunni ef þeim tekst ekki að komast upp með stuldinn, hvort slíkur stuldur sé alls ekki brot ef vörunni er bara skilað þegar viðkomandi er gripinn glóðvolgur.
Nei, það er ekki látið á það reyna. Það er bara afskrifað sem afgreitt og þar af leiðandi enginn grunur lengur,“ skrifar Björn Leví.
Spyr hvað sé satt
Hann spyr jafnframt hvað sé satt í þessu máli, hvað sé alvöru sannleikur. „Það getur vel verið að sitt sýnist hverjum en eitt ættu allir að geta séð, að vera dæmdur fyrir að segja satt getur ekki verið góð málsmeðferð. Hvort Sunna sagði satt skipti ekki máli. Það skipti meira máli að dæma hana og skamma. Hvað gerist næst þegar hún segir „rökstuddur grunur“ ... Hvort sem það er satt eða ekki? Ég veit að það gerist ekkert ef ég segi það, miðað við þessa niðurstöðu,“ segir hann og bætir því við að hann hafi meira að segja endurtekið það sem Þórhildur Sunna sagði en að ekkert hafi gerst.
Það er svo margt í þessu galið. Til dæmis: ",,Ómögulegt er einnig að setja þingmenn í þá stöðu að þurfa að kveða upp úr...
Posted by Björn Leví Gunnarsson on Wednesday, June 26, 2019