Meirihluti landsmanna, eða 64 prósent, segjast hafa breytt hegðun sinni mikið eða nokkuð síðastliðna tólf mánuði til að lágmarka áhrif sín á umhverfi og loftslagsbreytingar. Þá kveðast einungis 12 prósent svarenda ekki hafa gert breytingar á hegðun sinni. Landsmenn virðast þó tregari til að gera breytingar á matar- og ferðavenjum en alls segjast 60 prósent hafa gert litlar eða engar breytingar á matarvenjum sínum og 69 prósent á ferðavenjum sínum. Þetta kemur fram í nýrri umhverfiskönnun MMR sem framkvæmd var dagana 23. til 29. maí 2019.
86 prósent flokka meira sorp
Íslendingar virðast nokkuð meðvitaðir um áhrif sín á umhverfið en samkvæmt könnun MMR hafa 14 prósent landsmanna gert miklar breytingar á hegðun sinni. Þá segjast 50 prósent hafa gert nokkrar breytingar á hegðun sinni og fjórðungur litlar breytingar. Aðeins 12 prósent segjast ekki hafa gert neinar breytingar á hegðun sinni til að lágmarka áhrif á umhverfið og loftslagsbreytingar.
Í niðurstöðum könnunarinnarkemur jafnframt í ljós að Íslendingar eru meðvitaðir um flokkun sorps og segjast alls 86 prósent svarenda hafa síðastliðna tólf mánuði gert miklar eða nokkrar breytingar á flokkun sorps hjá sér. Þá kveðast 62 prósent hafa gert miklar eða nokkrar breytingar á kauphegðun sinni. Aftur á móti segjast mun færri hafa gert breytingar á matar- og ferðavenjum sínum en alls sögðust 60 prósent hafa gert litlar eða engar breytingar á matarvenjum sínum og 69 prósent á ferðavenjum sínum.
Konur frekar breytt hegðun sinni
Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar hafa 75 prósent kvenna gert miklar eða nokkrar breytingar á hegðun sinni samanborið við 53 prósent karla. Karlar eru jafnframt talsvert líklegri en konur til að hafa ekki gert neinar breytingar á hegðun sinni, eða alls 17 prósent karla samanborið 7 prósent.
Enn fremur er fólk á aldrinum 18 til 29 ára líklegri til að hafa gert miklar breytingar á hegðun sinni en alls 19 prósent ungs fólks segjast hafa gert miklar breytingar á hegðun sinni. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar fer hlutfall þeirra sem hafa gert miklar breytingar stiglækkandi með auknum aldri.
Þá er nokkur munur á svörum eftir stjórnmálaskoðunum. Af stuðningsfólki Samfylkingarinnar segjast 85 prósent hafa gert miklar eða nokkrar breytingar á hegðun sinni og 79 prósent stuðningsfólks Vinstri grænna. Af stuðningsfólki Miðflokksins segjast 24 prósent ekki hafa gert neinar breytingar á hegðun sinni, 20 prósent stuðningsfólks Framsóknar og 19 prósent stuðningsfólks Sjálfstæðisflokksins.