Rúmlega 90 prósent ungs fólks með áskrift að Netflix

Um þrír af hverjum fjórum Íslendingum hafa aðgengi að Netflix. Kjósendur Viðreisnar eru líklegastir til að hafa aðgengi að streymisveitunni en kjósendur Vinstri-grænna ólíklegastir.

netflix
Auglýsing

Tæpir þrír af hverjum fjórum Íslend­ingum með áskrift að Net­flix og 92 pró­sent alls fólks á aldr­inum 18 til 29 ára hafa aðgengi að streym­isveit­unni. Kjós­endur Við­reisnar eru lík­leg­astir til að hafa aðgengi að Net­flix en kjós­endur Vinstri-grænna ólík­leg­ast­ir. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR. Könn­unin var fram­kvæmd 23. til 29. maí 2019 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 932 ein­stak­ling­ar, 18 ára og eldri.

Auglýsing
Áskrifendum Net­flix fjölg­aði á síð­ustu árum. Alls eru 72 pró­sent þjóð­ar­innar með áskrift að Net­fl­ix, sam­an­borið við 67 pró­sent í maí 2018. Árið 2017 var hlut­fallið 59 pró­sent og í jan­úar 2016 höfðu um þriðj­ungur þjóð­ar­innar aðgengi að Net­fl­ix.

Þá eru 92 pró­sent fólks á aldr­inum 18 til 29 ára hafa aðgang að Net­flix sam­an­borið við 75 pró­sent fólks á aldr­inum 30 til 49 ára. Ein­ungis hafa 17 pró­sent fólks á aldr­inum 68 ára og eldri aðgang að Net­fl­ix. 

Mynd: frá MMR

Fólk á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er enn fremur lík­legra til að hafa áskrift að Net­fl­ix, það er 76 pró­sent íbúa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og 65 pró­sent fólks á lands­byggð­inni. Lít­ill munur reynd­ist á aðgengi að Net­flix eftir kyni.

Mynd: frá MMR

Kjós­endur Við­reisnar eru þau sem helst hafa aðgengi að Net­fl­ix, það er 84 pró­sent þeirra. Þar á eftir koma Píratar með 80 pró­sent og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með 73 pró­sent. Kjós­endur Vinstri-grænna eru ólík­leg­ust að hafa aðgengi að Net­flix þar sem ein­ungsi 61 pró­sent þeirra hafa aðgengi að streym­isveit­unni.

Mynd: frá MMR

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent