Framsýn stéttarfélag skorar á aðildarfélög Starfsgreinasambands Íslands, SGS, að slíta viðræðum við Sambands íslenskra sveitarfélaga, SNS, og hefja undirbúning að sameiginlegum verkfallsaðgerðum í haust með það að markmiði að „lama“ meðal annars allt skólastarf í leik- og grunnskólum landsins. Þetta kemur fram í ályktun stjórnar Framsýnar varðandi stöðuna í kjaraviðræðum Starfsgreinasambandsins sem Framsýn á aðild að.
Fá ekki sambærilega eingreiðslu
Í tilkynningu Framsýnar segir að mikil reiði sé á meðal starfsmanna sveitarfélaga vegna ákvörðunar samninganefndar sveitarfélaganna að undanskilja starfsmenn Starfsgreinasambandsins frá því að fá sambærilega eingreiðslu í ágúst og starfsmenn annarra stéttarfélaga og sambanda.
Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur samið við ákveðin sambönd og stéttarfélög um að þeirra félagsmenn sem starfa hjá sveitarfélögunum fái greiddar 105.000 eingreiðslu miðað við fullt starf þann 1. ágúst 2019, sem greiðslu inn á væntanlegan kjarasamning.
Þegar aðildarfélög SGS kröfðust þess að félagsmenn þeirra sem starfa hjá sveitarfélögunum fengju sömuleiðis umrædda eingreiðslu var því alfarið hafnað af hálfu samninganefndar sveitarfélaga með þeim rökum að Starfsgreinasambandið hefði vísað kjaradeilunni til ríkissáttasemjara.
Sú ákvörðun hefur verið harðlega gagnrýnd af SGS og Efling sem skorað hafa á sveitarfélögin að semja við þau um sömu greiðslur og aðrir munu fá þann 1. ágúst næstkomandi eða taka að öðrum kosti sjálfstæða ákvörðun um að greiða sínu fólki inn á væntanlegan kjarasamning til jafns við annað starfsfólk.
Framsýn segir þessa ákvörðun sveitarfélaganna með miklum ólíkindum og þeim til mikillar skammar gangi hún eftir. „Það er með öllu ólíðandi og samninganefnd SNS til vansa að skilja sína lægst launuðu starfsmenn eina eftir úti í kuldanum, það er þá sem starfa eftir kjarasamningi sveitarfélaga og Starfsgreinasambands Íslands. Framsýn trúir því ekki fyrr en á reynir, að sveitarstjórnarmenn í Þingeyjarsýslum hyggist koma fram við sitt frábæra starfsfólk með þessum hætti,“ segir í ályktuninni.
Skora á SGS að hefja undirbúning að sameiginlegum verkfallsaðgerðum
Framsýn skorar því á samninganefnd sveitarfélaganna að endurskoða afstöðu sína en félagið segir að umræður séu nú innan aðildarfélaga SGS að boða til verkfalls í haust standi samninganefndin við boðaða mismunun á hækkunum til starfsmanna sveitarfélaga í ágúst.
„Það er von Framsýnar að sveitarfélög í Þingeyjarsýslum virði starfsmenn sína jafnt og greiði öllum sínum starfsmönnum þessa hækkun í ágúst sem eru með lausa samninga, ekki bara þeim sem staðið hafa á kantinum meðan aðildarfélög Starfsgreinasambandsins hafa unnið að því að ganga frá kjarasamningi við SNS. Því miður hefur sú vinna ekki skilað árangri. Því skorar Framsýn á samninganefnd SNS að endurskoða sína afstöðu.“
Ef ekki þá skorar Framsýn á aðildarfélög Starfsgreinasambands Íslands að slíta viðræðum við SNS og hefja undirbúning að sameiginlegum verkfallsaðgerðum í haust með það að markmiði að lama meðal annars allt skólastarf í leik- og grunnskólum landsins. „Það er einfaldlega ekki hægt að aðildarfélög SGS standi aðgerðarlaus á kantinum á sama tíma og samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga ætlar kinnroðalaust að mismuna starfsmönnum sveitarfélaga. Skammist ykkar!“ segir að lokum í ályktuninni.