Siðanefnd Alþingis hefur sent álit sitt um Klausturmálið til forsætisnefndar

Siðanefnd Alþingis hefur klárað álit sitt um Klausturmálið svokallaða og sent forsætisnefnd. Þeir sex þingmenn sem náðust á upptöku hafa fengið álitið til umfjöllunar og hafa frest fram í lok þessarar viku til að skila andsvörum.

Þingmennirnir sex á Klaustur bar
Þingmennirnir sex á Klaustur bar
Auglýsing

Siða­nefnd Alþingis hefur klárað álit sitt um Klaust­ur­málið svo­kall­aða og sent til for­sætis­nefnd­ar. Þeir sex þing­menn sem náð­ust á upp­töku hafa fengið álitið til umfjöll­unar og hafa frest fram í lok þess­arar viku til að skila andsvör­um. For­sætis­nefnd klárar síðan lík­lega málið í næstu viku og verður álitið þá gert opin­bert. Frá þessu er greint í frétt RÚV í dag.

Klaust­­ur­­málið fór til siða­­nefndar Alþingis frá for­­sæt­is­­nefnd í lok maí síð­ast­lið­ins. Stein­unn Þóra Árna­dótt­ir, þing­­maður Vinstri grænna, og og Har­aldur Bene­dikts­­son, þing­­­maður Sjálf­­­stæð­is­­­flokks­ins, voru kjörin vara­­­for­­­setar for­­­sæt­is­­­nefndar Alþingis í jan­úar síð­­ast­liðnum til þess að fjalla um Klaust­­ur­­málið eftir að Stein­grímur J. Sig­­­fús­­­son, for­­­seti Alþing­is, og allir vara­­­for­­­setar úr hópi þing­­­manna, sögðu sig frá umfjöllun um Klaust­­­ur­­­mál­ið, vegna van­hæfis þann 17. des­em­ber 2019.

Auglýsing

Siða­­nefnd hefur þegar skilað for­­sæt­is­­nefnd öðru áliti vegna Klaust­­ur­­máls­ins, en það var birt í lok mars síð­­ast­lið­ins. Stein­unn Þóra og Har­aldur höfðu óskað eftir álit­inu. Í því sagði meðal ann­­ars: „Al­­­þing­is­­­­menn eru op­in­ber­ar per­­­­són­­­­ur, sú hátt­­­­semi sem um ræðir átti sér stað á op­in­ber­um vett­vangi og teng­ist mál­um sem hafa verið áber­andi í þjóð­­­fé­lags­um­­ræð­unni. Þar sem hátt­ernið varðar al­­­­menn­ing verður ekki litið á þau at­vik sem hér um ræðir sem einka­­­­sam­­­tal.“

Var það mat meiri­hluta nefnd­­ar­innar að sam­ræð­­­urnar sem fóru fram á barnum Klaustri á milli sex þing­­­manna Mið­­­flokks­ins og Flokks fólks­ins, á þeim tíma sem sam­ræð­­­urnar áttu sér stað, falli undir gild­is­­­svið siða­reglna þings­ins.

Sex þing­­menn á bar

Þriðju­dag­inn 20. nóv­­em­ber fóru sex þing­­menn – fjórir úr Mið­­flokki og tveir úr Flokki fólks­ins – á Klaust­ur bar, í námunda við Alþing­is­hús­ið. Þar sett­ust þeir nið­­ur, drukku áfengi og töl­uðu með niðr­andi og meið­andi hætti um sam­­starfs­­fólk sitt í stjórn­­­mál­­um.

Þeir stærðu sig einnig að póli­­tískum hrossa­­­kaupum með send­i­herra­­stöð­­ur, þing­­menn Mið­­flokks­ins reyndu að telja þing­­menn Flokks fólks­ins um að ganga til liðs við sig auk þess sem nið­­ur­lægj­andi orð eru látin falla um Freyju Har­alds­dótt­­ur, fyrr­ver­andi vara­­þing­­mann og þekktan bar­átt­u­­mann fyrir auknum rétt­indum fatl­aðra sem glímir við sjald­­gæfan bein­­sjúk­­dóm, og þekktan sam­kyn­hneigðan tón­list­­ar­­mann.

Það sem þing­­menn­irnir sex, þeir Sig­­­­mundur Dav­­­íð Gunn­laugs­­son, for­­maður Mið­­flokks­ins, Gunnar Bragi Sveins­­son, vara­­for­­maður hans, Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, rit­­ari flokks­ins, Berg­þór Óla­­son, þing­­maður Mið­­flokks­ins, og Karl Gauti Hjalta­­­­son og Ólafur Ísleifs­­­­son úr Flokki fólks­ins, vissu ekki var að í nálægð við þá sat ein­stak­l­ingur sem upp­­haf­­lega kall­aði sig bara „Mar­vin“. Sá tók upp það sem fram fór og sendi á valda fjöl­miðla.

Upp­­tök­­urnar voru síðar birtar í fjöl­miðlum og „Mar­vin“ steig síðar fram sem Bára Hall­­dór­s­dótt­­ir.

Karl Gauta Hjalta­­syni og Ólafi Ísleifs­­syni var vísað úr Flokki fólks­ins í kjöl­farið og gengu til liðs við Mið­­flokk­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent