Drífa Snædal forseti ASÍ segir að það komi verulega á óvart að stjórnvöld séu að móta stefnu í ferðaþjónustu til ársins 2030 án þess að fulltrúum vinnandi fólks hafi verið boðið að borðinu. Frá þessu greinir hún í stöðuuppfærslu á Facebook-síðu sinni í dag.
Í upphafi árs var skipaður stýrihópur sem hafði það hlutverk að setja fram drög að framtíðarsýn og leiðarljósi íslenskrar ferðaþjónustu til 2030. Tvö skjöl voru lögð fram í samráðsgátt stjórnvalda í júní síðastliðnum; Framtíðarsýn og leiðarljós íslenskrar ferðaþjónustu til 2030 og Jafnvægisás ferðamála. Umsagnarfrestur er liðinn en hann var til 21. júlí 2019. Þrjár umsagnir bárust, meðal annars frá Samtökum ferðaþjónustunnar og ASÍ.
Met í afneitun
Drífa segir að stéttarfélög um land allt hamist við að verja réttindi fólks einmitt í ferðaþjónustunni og þar sé ekki allt fallegt sem þau sjá. „Reyndar er ferðaþjónustan í dag mjög frek á starfsfólk og laununum er haldið niðri svo ekki sé talað um öll réttindabrotin í greininni. Stéttarfélög áætla að um 70% af þeirra tíma og orku fari í að berjast fyrir réttindum fólks í ferðaþjónustu en hlutfall félagsmanna í greininni er umtalsvert lægra,“ skrifar hún.
Hún segir jafnframt að það að móta stefnu í greininni án þess að eyða einni setningu í aðbúnað, menntun og stöðu þeirra sem vinna vinnuna sé einhvers konar met í afneitun.
Að ræða breytingar á leigubílaakstri án þess að taka tillit til vinnandi fólks ekki í boði
Drífa telur að það sama megi segja um umræðuna um að afnema sérleyfin í leigubílaakstri. Flestar borgir þar sem til að mynda Uber hafi fest sig í sessi séu í tómum vandræðum einmitt vegna félagslegra undirboða og yfirvöld reyni af fremsta mætti að vinda ofan af þeirri þróun. Þau sem keyra bílana séu langt fyrir neðan lágmarkslaun og fari arðurinn til fyrirtækja sem skráð eru í öðrum löndum.
„Að ræða breytingar á leigubílaakstri, þó ekki sé verið að leyfa Uber sérstaklega, án þess að taka tillit til vinnandi fólks í greininni er einfaldlega ekki í boði. Það ríður enginn feitum hesti frá leigubílaakstri í dag og lækkun verðs á leigubílum þýðir launalækkun fyrir þá sem aka. Þetta er eitt skýrasta dæmi um deilihagkerfið og hvernig það getur snúist gegn vinnandi fólki þar sem einstaklingar eru í samkeppni hver við aðra án þess að vera í föstu ráðningarsambandi með þeim réttindum sem fylgir,“ skrifar Drífa.
Hún hvetur Íslendinga að fara varlega í sakirnar og að ASÍ krefjist þess að allar stefnumótanir til framtíðar séu ekki síst unnar út frá hagsmunum vinnandi fólks.
Það kom verulega á óvart að stjórnvöld séu að móta stefnu í ferðaþjónustu til ársins 2030 án þess að fulltrúum vinnandi...
Posted by Drífa Snædal on Wednesday, July 24, 2019