Virði kínverska yuansins gegn Bandaríkjadal náði tíu ára lágpunkti í gær. Samkvæmt umfjöllun New York Times um málið var veikingin notuð sem vopn í yfirstandandi viðskiptastríði Bandaríkjanna við Kína.
Yuanið hefur sögulega verið undir ströngu eftirliti kínverskra stjórnvalda sem haldið hafa gengi gjaldmiðilsins stöðugu með tíðum ríkisinngripum. Í gær veiktist gjaldmiðillinn hins vegar um eitt prósent gagnvart Bandaríkjadal og er því orðinn veikari en því sem nemur einum sjöunda af dollara í fyrsta skipti frá heimskreppunni árið 2008.
Kínversk yfirvöd segja veikinguna vera vegna markaðsafla, en samkvæmt blaðamönnum New York Times er það pólitísk ákvörðun að ríkisstjórnin hafi leyft gjaldmiðli sínum að veikjast svona mikið. Donald Trump Bandaríkjaforseti gagnrýndi veikinguna harðlega á Twitter í gær og ásakaði Kína um að halda uppi fölsku gengi á gjaldmiðlinum sínum, eins og sjá má hér að neðan.
China is intent on continuing to receive the hundreds of Billions of Dollars they have been taking from the U.S. with unfair trade practices and currency manipulation. So one-sided, it should have been stopped many years ago!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) August 5, 2019
Með veikingu yuansins verða kínverskar útflutningsgreinar samkeppnishæfari, en það dregur úr áhrif verndartollana sem Bandaríkisstjórn hafa sett á þarlendar vörur. Veikingin gæti því leitt til enn frekari tollahækkana af hálfu Bandaríkjastjórnar, sem myndi aftur leiða til meiri veikingar. Slík dómínóáhrif myndu hafa víðtæk áhrif meðal kínversks almennings og annarra ríkja í Suð-Austur Asíu sem flytja einnig út vörur til Bandaríkjanna, þar sem veikara gengi myndi leiða til verðbólgu vegna verðhækkana á innfluttum vörum og þar af leiðandi minni kaupmátt.
Fjárfestar virðast viðbúnir harðari átökum milli Kína og Bandaríkin eftir veikinguna í gær, en Standard og Poors og FTSE vísitölurnar lækkuðu báðar um tvö og hálft prósent og Nikkei vísitalan í Japan lækkaði um tæp tvö prósent.