Hlutur Stoða í Símanum kominn yfir tíu prósent

Fjárfestingafélagið Stoðir á nú 10,86 prósent í Símanum, er stærsti hluthafi TM og stærsti innlendi einkafjárfestirinn í Arion banka.

siminn
Auglýsing

Fjár­fest­inga­fé­lagið Stoðir hefur bætt við sig hlutum í Sím­anum og á nú 10,86 pró­sent í félag­inu. Upp­kaup Stoða í félag­inu hófust í maí þegar keypt voru 8,11 pró­sent. Síðan hafa Stoðir bætt jafnt og þétt við sig hlutum og fjár­fest­inga­fé­lagið er nú annar stærsti hlut­hafi þessa stærsta fjar­skipta­fyr­ir­tækis lands­ins. Ein­ungis Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna á stærri hlut, 12,27 pró­sent. 

Stoð­ir, sem einu sinni hét FL Group, hefur á und­an­förnum miss­erum látið veru­lega til sín taka á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði. Félagið á tæp­lega fimm pró­senta hlut í Arion banka og er stærsti inn­lendi einka­fjár­festir­inn í því félag­i.  Sá hlutur hefur að mestu verið keyptur á þessu ári. Þá eru Stoðir stærsti ein­staki hlut­hafi TM með 9,97 pró­sent hlut en sá hlutur var keyptur í maí síð­ast­liðn­um. 

Eigið fé 17,5 millj­arðar um ára­mót

Stoð­ir, sem áður hét FL Group, fór með him­in­­skautum fyrir banka­hrun sem eitt umsvifa­­mesta fjár­­­fest­inga­­fé­lag banka­­bólunn­­ar. Þegar Glitn­ir, stærsta eign FL Group, féll var ljóst að félagið myndi ekki lifa af. Það fór í greiðslu­­stöðvun og síðar í gegnum nauða­­samn­inga þar sem kröf­u­hafar eign­uð­ust félag­ið. Stærstur þeirra var Glitn­ir, bank­inn sem félagið hafði átt stóran hlut í.

Auglýsing

Síð­­­ustu ár hafa Stoðir hægt og rólega selt eignir sínar og greitt afrakst­­ur­inn til kröf­u­hafa. Vorið 2017 seldi svo Glitn­ir­Holdco 40 pró­­sent í félag­inu á meðan að tvö félög, S121 ehf. og S122 ehf., keyptu rúman 50 pró­­senta hlut. Félögin tvö eru í eigu stórra hlut­hafa í Trygg­inga­mið­stöð­inni (TM) sem voru margir hverjir lyk­il­­menn í FL Group á árunum fyrir hrun.

Í mars 2018 seldu Stoð­ir, í gegnum eign­­ar­halds­­­fé­lagið Ferskur Hold­ing 1, tæpan níu pró­sent eign­­ar­hlut sinn í hol­­lenska drykkj­­ar­vöru­fram­­leið­and­­anum Refresco, en yfir­­­tökutil­­boðið var sam­­þykkt af Refresco í októ­ber 2017. Sölu­verðið nam 144 millj­­ónum evra, sem jafn­­gilti um 18 millj­­örðum íslenskra króna. Hlutur Stoða var met­inn á um 12,7 millj­­arða króna um ára­­mótin 2016/2017, sem þýðir að félagið hagn­að­ist um rúma fimm millj­­arða á árinu 2017. Með hagn­aði árs­ins 2017 hækk­­aði eigið fé félags­­ins einnig um fimm millj­­arða, en það stóð  í 18,3 millj­­örðum íslenskra króna sam­­kvæmt árs­­reikn­ingifélags­ins fyrir það ár. Stoðir högn­uð­ust um tæp­lega 1,1 millj­arð króna í fyrra og eigið fé félags­ins nam 17,5 millj­örðum króna í árs­lok. 

For­­maður stjórnar Stoða er Jón Sig­­urðs­­son, en með honum í stjórn sitja þeir Sig­­ur­jón Páls­­son og Örvar Kærne­sted. 

Fram­­kvæmda­­stjóri félags­­ins er Júl­­íus Þor­finns­­son.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent