Árni Pétur ráðinn forstjóri Skeljungs

Fyrrverandi forstjóri Teymis og Basko ráðinn forstjóri Skeljungs.

skeljungur
Auglýsing

Árni Pétur Jóns­son hefur verið ráð­inn for­stjóri Skelj­ung og mun hefja störf í dag. Árni Pétur var síð­ast for­stjóri Basko, sem átti m.a. 10-11 og Iceland versl­an­irnar og hlut í Eldum rétt. Hann lét af störfum hjá Basko í júlí í fyrra í kjöl­far þess að Sam­kaup keyptu á annan tug versl­anna af fyr­ir­tæk­in­u.  

Til­kynn­ing var um þetta í Kaup­höll í morg­un. Hann seg­ist hlakka til verk­efn­is­ins. „Ég þekki Skelj­ung vel og veit að þar starfar öfl­ugt og reynslu­mikið fólk.  Starf­semi okkar á Íslandi og í Fær­eyjum byggir á traustum grunni sem við ætlum að halda áfram að þróa. Rekstr­ar­um­hverfi fyr­ir­tæk­is­ins hefur og mun taka breyt­ingum á næstu árum, sem gerir starfið mjög áhuga­vert.“ 

Auglýsing

Árni Pétur var for­stjóri Teymis á sínum tíma auk þess sem hann hefur starfað sem fram­kvæmda­stjóri hjá Olís og Högum áður en að varð for­stjóri Basko. Hann hefur átt sæti í fjöl­mörgum stjórnum fyr­ir­tækja, ýmist sem stjórn­ar­maður eða stjórn­ar­for­mað­ur.  Má þar nefna fyr­ir­tæki s.s. Lyfja, Securitas, Skelj­ung­ur, Penn­inn, Borgun og Eldum rétt. Þá hefur Árni Pétur komið að rekstri síma­fyr­ir­tæk­is­ins Kall í Fær­eyjum og Bónus í Fær­eyj­um.  

Hefur unnið náið með Jóni Ásgeiri

Árni Pétur hefur áður unnið náið með, og fyr­ir, félög tengd Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni, sem tók sæti í stjórn Skelj­ungs í maí síð­ast­liðn­um. Jón Ásgeir var til að mynda for­stjóri og síðar stjórn­ar­for­maður Baugs Group, sem átti Haga og var stærsti hlut­haf­inn í Teymi þegar Árni Pétur stýrði því fyr­ir­tæki. 

Jón Ásgeir sett­ist í stjórn Skelj­ungs í krafti þess að 365 miðl­ar, félag í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur eig­in­konu Jóns Ásgeirs, höfðu keypt upp hluti í félag­inu. 365 miðlar eiga nú 4,32 pró­sent hlut í Skelj­ungi og eru sjö­undi stærsti hlut­hafi félags­ins. 

Stærstu hlut­hafar Skelj­ungs eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir og bank­ar. 

Jens Mein­hard Rasmus­sen, stjórn­ar­for­m­aður Skelj­ungs, segir að með ráðn­ing­unni á Árna Pétri sem for­stjóra Skelj­ungs sé félagið að fá reynslu og þekk­ingu sem nýt­ist því „til að sækja fram á við og móta fyr­ir­tækið til fram­tíð­ar­.“ 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent