Ballarin á Íslandi að reyna aftur við endurreisn WOW air

Bandaríska athafnakonan Michelle Ballarin er stödd hérlendis til að reyna aftur að kaupa eignir úr þrotabúi WOW air. Í föruneyti hennar er þekktur íslenskur almannatengill og íslenskur lögmaður hennar.

Mun WOW air taka á loft að nýju?
Mun WOW air taka á loft að nýju?
Auglýsing

Michele Ball­ar­in, sem gerði kaup­samn­ing um valdar eignir úr þrota­búi WOW air fyrir nokkru sem síðan var rift, er nú stödd hér­lendis í þeim erinda­gjörðum að reyna aftur við stofnun nýs flug­fé­lags á grunni WOW air. Hér­lendis eru full­trúar hennar almanna­teng­ill­inn Gunnar Steinn Páls­son og lög­mað­ur­inn Páll Ágúst Ólafs­son. Frá þessu er greint á frétta­vefnum Túrist­i.is, sem sér­hæfir sig í ferða­þjón­ustu­tengdum frétt­u­m. 

Sveinn Andri Sveins­son, annar skipta­stjóra þrota­bús WOW air, segir í sam­tali við Kjarn­ann að hún hafi þó enn ekki sett sig í sam­band við þrota­búið á ný.

Frétta­blaðið greindi frá í í júlí að  gengið hefði verið frá kaupum á öllum eignum þrota­bús WOW air sem tengj­ast flug­rekstri. Um var að ræða bæði vöru- og mynd­­merki WOW air, WOW lén­in, flug­­­rekstr­­ar­bæk­­ur, bók­un­­ar­­kerfi, hug­­bún­­að, sölu­vagna, ­sölu­tölv­ur, ein­­kenn­is­fatnað ásamt stærstum hluta vara­hluta­la­­gers og verk­­færa. Síðar kom í ljós að hinn vænt­an­legi kaup­andi­var um Michele Ball­ar­in. 

Auglýsing
Hún kom svo í við­tal við Við­skipta­Mogg­ann skömmu síðar og þar full­yrti hún að búið væri að tryggja millj­arða króna til rekst­urs nýs flug­fé­lags á grunni WOW air sem ætti að duga næstu tvö árin. 

Í lok júlí var kaup­unum hins vegar rift vegna þess að síend­ur­tekið hafði dreg­ist að borga fyrstu greiðslu sam­kvæmt kaup­samn­ingi sem gerður var milli félags Ball­arin og þrota­bús­ins. Heild­ar­um­fang við­skipt­anna átti að vera ríf­lega 180 millj­ónir króna og sú greiðsla að greið­ast í þremur nokkuð jöfnum áföng­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent