Gildi lífeyrissjóður ætlar að greiða atkvæði gegn því á komandi hluthafafundi HB Granda að ákvörðun stjórnar félagsins um kaup á öllu hlutafé í sölufélögum í Japan, Hong Kong og á meginlandi Kína, sem og þjónustufélagi á Íslandi, frá Útgerðarfélagi Reykjavíkur á 4,4 milljarða króna verði staðfest. Seljandinn, Útgerðarfélag Reykjavíkur, er jafnframt er stærsti hluthafi HB Granda.
Frá þessu er greint í tilkynningu frá Gildi. Lagt hefur verið til að kaupverðið verði greitt með 7,3 prósent aukningu á hlutafé HB Granda. Verði kaupin samþykkt mun Útgerðarfélag Reykjavíkur eiga samtals 42,31 prósent í HB Granda.
Í tilkynningunni segir að „stjórn félagsins hefur þannig í hyggju að hefja sölustarfsemi í Asíu með þeim hætti að verja á verulegum fjármunum til þess að fjárfesta í félögum í eigu Útgerðarfélags Reykjavíkur sem sinna sölustarfsemi á þessum mörkuðum. Viðskiptin virðast eiga sér afar skamman aðdraganda hjá stjórn félagsins. Að mati Gildis eru þessar fyrirætlanir ekki trúverðugar og ekki hefur verið sýnt fram á að aðrar leiðir séu ekki færar til þess að ná fram sömu markmiðum, mögulega með minni tilkostnaði. Viðskipti milli tengdra aðila verða að vera hafin yfir vafa og að mati sjóðsins hefur ekki tekist að sýna fram á að þessi viðskipti séu hagfelld og nauðsynleg fyrir HB Granda. Gildi hyggst af þessum sökum greiða atkvæði gegn framangreindri tillögu á hluthafafundi HB Granda hinn 15. ágúst næstkomandi.“
Stjórn HB Granda samþykkti kaupin á sölufélögunum á fundi sínum 18. júlí og að þau yrðu lögð fyrir hluthafafund til samþykktar. Guðmundur Kristjánsson er forstjóri HB Granda, og jafnframt stærsti eigandi Útgerðarfélags Reykjavíkur. Útgerðafélag Reykjavíkur er einnig stærsti eigandi HB Granda.