Gildi greiðir atkvæði gegn kaupum HB Granda á eignum stærsta eigandans

Gildi ætlar að greiða atkvæði gegn 4,4 milljarða króna kaupum HB Granda á sölufélögum sem í dag eru í eigu stærsta hluthafa félagsins, Útgerðarfélags Reykjavíkur.

HB Grandi
Auglýsing

Gildi líf­eyr­is­sjóður ætlar að greiða atkvæði gegn því á kom­andi hlut­hafa­fundi HB Granda að ákvörðun stjórnar félags­ins um kaup á öllu hlutafé í sölu­fé­lögum í Jap­an, Hong Kong og á meg­in­landi Kína, sem og þjón­ustu­fé­lagi á Íslandi, frá Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur á 4,4 millj­arða króna verði stað­fest. Selj­and­inn, Útgerð­ar­fé­lag Reykja­vík­ur, er jafn­framt er stærsti hlut­hafi HB Granda.

Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá Gildi. Lagt hefur verið til að kaup­verðið verði greitt með 7,3 pró­sent aukn­ingu á hlutafé HB Granda. Verði kaupin sam­þykkt mun Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur eiga sam­tals 42,31 pró­sent í HB Granda. 

Auglýsing

Í til­kynn­ing­unni segir að „stjórn félags­ins hefur þannig í hyggju að hefja sölu­starf­semi í Asíu með þeim hætti að verja á veru­legum fjár­munum til þess að fjár­festa í félögum í eigu Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur sem sinna sölu­starf­semi á þessum mörk­uð­um. Við­skiptin virð­ast eiga sér afar skamman aðdrag­anda hjá stjórn félags­ins. Að mati Gildis eru þessar fyr­ir­ætl­anir ekki trú­verð­ugar og ekki hefur verið sýnt fram á að aðrar leiðir séu ekki færar til þess að ná fram sömu mark­mið­um, mögu­lega með minni til­kostn­aði. Við­skipti milli tengdra aðila verða að vera hafin yfir vafa og að mati sjóðs­ins hefur ekki tek­ist að sýna fram á að þessi við­skipti séu hag­felld og nauð­syn­leg fyrir HB Granda. Gildi hyggst af þessum sökum greiða atkvæði gegn fram­an­greindri til­lögu á hlut­hafa­fundi HB Granda hinn 15. ágúst næst­kom­and­i.“

Stjórn HB Granda sam­þykkti kaupin á sölu­fé­lög­unum á fundi sínum 18. júlí og að þau yrðu lögð fyrir hlut­hafa­fund til sam­þykkt­ar. Guð­­mundur Krist­jáns­­son er for­­stjóri HB Granda, og jafn­­framt stærsti eig­andi Útgerð­­ar­­fé­lags Reykja­vík­­­ur. Útgerða­­fé­lag Reykja­víkur er einnig stærsti eig­andi HB Granda. ­

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent