Ákærð fyrir morð vegna fósturláts

Ung kona í El Salvador er ákærð fyrir morð vegna fósturláts. Mál hennar hefur varpað ljósi á ofsóknir yfirvalda El Salvador gegn konum sem missa fóstur.

Evelyn Beatríz Hernández Cruz.
Evelyn Beatríz Hernández Cruz.
Auglýsing

Kona í El Salvador hefur verið ákærð fyrir morð vegna fóst­ur­láts. Kon­an, Evelyn Beatríz Her­nández Cruz, hafði verið í fang­elsi í 33 mán­uði áður en henni tókst að áfrýja máli sínu. Evelyn var nauðgað sem ung­lingur og varð hún ólétt í kjöl­far­ið. Hún seg­ist ekki hafa vitað af því að hún væri ólétt þar sem hún hafi farið á blæð­ingar nokkrum sinnum á meðan með­göng­unni stóð. Mál hennar hefur varpað ljósi á ofsóknir yfir­valda í El Salvador gegn konum sem missa fóst­ur.

Yfir­völd í El Salvador saka Evelyn um að hafa vitað af ólétt­unni og að hún hafi rofið þung­un­ina, en þung­un­ar­rof er ólög­legt í El Salvador. Evelyn er nú 21 árs en var 18 ára þegar hún varð ólétt. Kemur hún frá fátækri fjöl­skyldu og mætir nú í annað sinn fyrir rétt. The Guar­dian greinir frá­.  

Auglýsing
Dæmd til 30 ára fang­els­is­vistar 

Dán­ar­dóm­stjór­inn sem fór með mál Evelyn skráði dán­ar­or­sök barns­ins sem lungna­bólgu í kjöl­far sýk­ingar vegna barna­biks. Þrátt fyrir það var Evelyn dæmd til 30 ára fang­els­is­vist­ar. 

Evelyn fær nú að ganga frjáls leiða sinna eftir 33 mán­aða fang­els­is­vist, þar sem áfrýjun á máli hennar tókst. Hins vegar hefur Evelyn verið kærð á ný og mun þurfa að dæma í máli hennar að nýju. 

Nayib Bukele, for­seti El Salvador, hefur lýst því yfir að engin kona ætti að vera dæmd í fang­elsi vegna erf­ið­leika á með­göngu. Hann er þó afar and­vígur rétti kvenna til þung­un­ar­rofs.

Afar íhalds­samt sam­fé­lag

Í El Salvador búa sex millj­ónir íbúa og hefur kaþ­ólska kirkjan mikil völd á stefnu stjórn­valda þar í landi og hefur þung­un­ar­rof hefur verið ólög­legt frá árinu 1998. Síðan þá hafa tugir kvenna verið ofsóttir fyrir morð eftir að hafa misst fóstur eða fætt and­vana barn. Flestar þeirra eru fátækar konur úr sveit­u­m. 

Ofbeldi gegn konum er einnig afar algengt í El Salvador, þar sem ein kona er myrt á 15 klukku­stunda fresti.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent