Umhverfisstofnun hefur ákveðið að hrinda af stað ítarlegri rannsókn á umfangi matarsóunar á Íslandi árið 2019. Þetta kemur fram í frétt Umhverfisstofnunar.
Í næstu viku verður byrjað að hringja út til ríflega 1.000 heimila sem lenda í slembiúrtaki og heimilisfólk beðið að taka þátt í rannsókninni. Þátttakendur verða beðnir að vigta mat og matarúrgang sem fer til spillis á heimilinu í eina viku og skrá inn í gagnagátt sem vistuð er á heimasíðu Umhverfisstofnunar. Síðar verður hringt í fyrirtæki, einnig samkvæmt slembivali. Gallup sér um úthringingarnar.
Vestræn lönd sóa gífurlegu magni matvæla á hverju ári sem hefðu hugsanlega geta brauðfætt milljónir manna. Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna metur það sem svo að 1,3 milljón tonn af matvælum fari í ruslið á hverju ári. Semsagt um þriðjungur þess matar sem keyptur fer beint í ruslið.
Í frétt Umhverfisstofnunar kemur fram að þau vonist til að sem flestir sjái sér þess kost að taka þátt í rannsókninni, því góð þátttaka sé forsenda þess að áræðanlegar upplýsingar fáist um umfang matarsóunar hér á landi. Umhverfisstofnun stóð fyrir sambærilegri rannsókn árið 2016.
Matarsóunarrannsóknin er gerð með styrk frá Evrópsku hagstofunni (EUROSTAT). Tilgangurinn er að afla hagtalna um umfang matarsóunar á Íslandi, samkvæmt Umhverfisstofnun.