ADHD samtökin mótmæla harðlega breyttum inntökuskilyrðum sem Mennta- og starfþróunarsetur lögreglurnar hefur nýverið upplýst um. Þar er í fyrsta sinn hérlendis þrengt verulega að atvinnu- og menntamöguleikum fólks með ADHD. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum en ályktun þess efnis var samþykkt á stjórnarfundi í dag.
Viðmið vegna ADHD/ADD voru uppfærð þann 15. júlí síðastliðinn og segir nú að greiningin ADHD/ADD geti verið útilokandi þáttur, sérstaklega hjá einstaklingum sem séu í lyfjameðferð vegna ADHD. Hafi umsækjandi fyrri sögu um slíka greiningu þurfi viðkomandi að leggja fram vottorð sérfæðilæknis sem lögð verði til grundvallar mati trúnaðarlæknis í hverju tilviki.
Að mati ADHD samtakanna byggja þessar breyttu reglur Mennta- og starfsþróunarseturs lögreglunnar á vanþekkingu, úreltum hugmyndum og stangast beinlínis á við lög og vísindalega þekkingu um ADHD og virkni ADHD lyfja. „Svo getur virst sem þekkingu höfundar reglnanna, á málaflokknum, sé alvarlega ábótavant sem má meðal annars sjá af orðalagi þess hluta leiðbeininganna sem fjallar um læknisvottorð,“ segir í tilkynningu samtakanna.
Yfirvöld hermála í Noregi nýlega afnumið sambærilegar takmarkanir
ADHD samtökin benda jafnframt á að nýverið hafi yfirvöld hermála í Noregi afnumið sambærilegar takmarkanir á inntöku einstaklinga með ADHD í norska herinn enda talið fráleitt að setja svo alvarlegar og almennar skorður við atvinnufrelsi fólks með ADHD, líkt og nýjar reglur Mennta- og starfsþróunarseturs lögreglunnar gera ráð fyrir.
ADHD samtökin skora enn fremur á Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar, ríkislögreglustjóra og ráðherra málaflokksins, að afturkalla nýju inntökureglurnar nú þegar, „þar sem markmið þeirra virðist það eitt að útiloka fólk með ADHD frá störfum innan lögreglunnar. Einnig má færa rök fyrir því að reglurnar gætu orðið til þess að þeir lögreglumenn sem eru nú þegar starfandi og eru með greint eða ógreint ADHD veigri sér við að leita sér aðstoðar, sem svo aftur getur haft neikvæð áhrif á starfsgetu þeirra innan lögreglunnar.“
Þá kemur fram í frétt ADHD samtakanna að þau muni aldrei sætta sig við hinar nýju reglur og heita þau því að berjast gegn slíkri mismunun, hérlendis og annarsstaðar þar sem slíkar reglur eru enn í gildi. Um það hafi þegar tekist samstarf við systursamtök ADHD samtakanna á Norðurlöndunum.