Sýn ofmat tekjur sínar og vanmat kostnað við útsendingu miðla

Sýn sendi frá sér afkomuviðvörun í dag. Tekjur 2019 verða tæplega 400 milljónum krónum lægri en áætlað var. Félagið mun kynna stefnumótun til framtíðar samhliða næsta uppgjöri sínu, sem birt verður í næstu viku.

Sýn - Suðurlandsbraut
Auglýsing

Fjöl­miðla- og fjar­skipta­fyr­ir­tækið Sýn hf. hefur gefið út afkomu­við­vörun þar sem fram kemur að tekjur fyrir árið 2019 vegna fjöl­miðla og fjar­skipta hafi verið ofá­ætl­aðar um tæpar 400 millj­ónir króna í fyrri áætlun og að kostn­aður við útsend­ingar miðla van­á­ætl­aður um 160 millj­ónir króna. 

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar vegna þessa segir að fram­kvæmda­stjórn Sýnar sé „búin að breyta upp­gjörum deilda og skerpa á innri ferlum sem mun skila sér í áreið­an­legri spám héðan í frá.  Sömu­leiðis hafa aðgerðir sem gripið var til í rekstr­inum í sumar lækkað kostn­að­ar­stig fyr­ir­tæk­is­ins umtals­vert til fram­tíð­ar­.“ 

Félagið mun birta upp­gjör sitt vegna fyrri hluta árs í næstu viku, nánar til­tekið 28. ágúst. Hluta­bréf í Sýn hafa lækkað um átta pró­sent í Kaup­höll­inni það sem af er deg­i. 

Upp­sagnir í síð­ustu viku

Sýn varð til þegar Fjar­­skipti, móð­­ur­­fé­lag Voda­fone á Íslandi, breytti nafni sínu á aðal­­fundi sínum í mars í fyrra. Nokkrum mán­uðum áður, nánar til­­­tekið í des­em­ber 2017, höfðu Fjar­­skipti sam­einað fjöl­miðla­­starf­­semi inn í rekstur félags­­ins sem fól í sér meðal ann­­ars Stöð 2, Stöð2 Sport, Vísi, Bylgj­una, FM957 og Xið 977. Mið­l­ana höfðu Fjar­­skipti keypt af 365 mið­l­­um. Nafna­breyt­ingin var fram­­kvæmd svo að heitið væri meira lýsandi fyrir starf­­semi hins sam­ein­aða félags.

Auglýsing
Þrettán manns var sagt upp störfum hjá Sýn í síð­ustu viku. Á meðal þeirra eru dag­­skrár­­gerð­­ar­­mað­­ur­inn Hjörvar Haf­liða­­son, sem hefur starfað í sjón­­varpi og útvarpi árum sam­an, og frétta­­menn­irnir Kristín Ýr Gunn­­ar­s­dóttir og Sig­hvatur Jóns­­son, sem starfa á frétta­­stofu Stöðvar 2 og Bylgj­unn­­ar.

Munu kynna stefnu­mótun til fram­tíðar

Sýn hefur ekki birt upp­­­gjör sitt vegna ann­­ars árs­fjórð­ungs, en mun gera það 28. ágúst, líkt og áður sagði. Félagið skil­aði 670 millj­­­ónum króna hagn­aði á fyrsta árs­fjórð­ungi, sem er hækkun um 619 millj­­­ónir króna milli ára. Lyk­ilá­­­stæða þess að Sýn skil­aði hagn­aði á árs­fjórð­ungnum er vegna þess að bók­­­færður sölu­hagn­aður vegna sam­runa P/F Hey, dótt­­­ur­­­fé­lags Sýnar hf. í Fær­eyjum og Nema, dótt­­­ur­­­fé­lag Tjald­urs, gekk í gegn á fjórð­ungnum og er 49,9 pró­­­sent hlutur Sýnar hf. í nýju sam­ein­uðu félagi færður sam­­­kvæmt hlut­­­deild­­­ar­að­­­ferð og því ekki hluti af sam­­­stæð­u­­­reikn­ings­skilum Sýnar hf. frá byrjun þessa árs. Alls nemur bók­­­færður sölu­hagn­aður vegna þessa 817 millj­­­ónum króna. Án hans hefði verið tap á rekstri Sýnar á árs­fjórð­ungn­­­um.

Tekjur Sýnar á tíma­bil­inu voru 4.975 millj­­­ónir króna sem er lækkun um eitt pró­­­sent frá sama tíma­bili í fyrra, þegar tekjur voru 5.030 millj­­­ónir króna. Ef verð­­­bólga er tekin inn í dæmið þá var sam­­­drátt­­­ur­inn í raun­­­tekjum meiri en áður­­­­­nefnt eitt pró­­­sent. Kostn­að­­­ar­verð jókst að sama skapi og dróst fram­­­legð saman um 118 millj­­­ónir króna milli ára. 

Tekjur Sýnar sam­an­standa úr nokkrum stoð­­­um. Sú eina þeirra sem skil­aði meiri tekjum í ár en á sama árs­fjórð­ungi 2018 var sala á inter­­­net­­­þjón­­­ustu. Tekjur vegna fjöl­mið­l­un­­­ar, far­síma, fast­línu og vöru­­­sölu dróg­ust allar sam­­­an.

Von er á ítar­­legri kynn­ingu á stefn­u­­mótun Sýnar í næsta upp­­­gjöri félags­­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent