Leiga á íbúð sögð greiðsla á persónulegum kostnaði Skúla

Félagið sem leigði íbúð fyrir forstjóra WOW air í London hét áður Mogensen Limited. Skiptastjórar telja 37 milljóna króna leigugreiðslur hafa verið vegna persónulegs kostnaðs hans en ekki á viðskiptalegum forsendum.

Skúli Mogensen, var forstjóri og eigandi WOW air.
Skúli Mogensen, var forstjóri og eigandi WOW air.
Auglýsing

Félag sem heitir WOW air Ltd., og er skráð í Englandi, var lengi vel í per­sónu­legri eigu Skúla Mog­en­sen. Félagið hét áður Mog­en­sen Limited en nafni þess var breytt fyrir nokkrum árum. Starf­semi félags­ins fólst aðal­lega í að leigja íbúð í London. Skúli Mog­en­sen og kærasta hans bjuggu í umræddri íbúð en þau héldu heim­ili á Íslandi og í London.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu skipta­stjóra WOW air sem kynnt var fyrir kröfu­höfum félags­ins fyrir rúmri viku. Skýrslan byggir meðal ann­ars á athugun Deloitte á því sem átti sér stað innan WOW air áður en félagið fór í gjald­þrot í lok mars. Hægt er að lesa ítar­lega skýr­ingu um nið­ur­stöðu hennar hér

Í skýrslu skipta­stjór­anna segir að flug­fé­lagið hafi greitt 37 millj­ónir króna í leigu vegna íbúð­ar­innar á tveggja ára tíma­bili, frá 28. mars 2017 og þangað til að WOW air fór í þrot. Það þýðir að með­al­tals­mán­að­ar­leiga hefur verið rúm­lega 1,5 milljón króna á mán­uð­i. 

WOW air Ltd. var fram­selt til WOW air í sept­em­ber 2018, sama mán­uði og skulda­bréfa­út­boð félags­ins fór fram. Skipta­stjór­arnir segja að eng­inn samn­ingur hafi veirð í gildi milli WOW air og WOW air Ltd. „vegna þess­arar íbúðar og þá voru greiðslur WOW vegna hennar ekki sam­þykktar í stjórn félags­ins.“ 

Auglýsing
Leigugreiðslurnar hafi ein­fald­lega verið vegna greiðslu á per­sónu­legum kostn­aði hlut­hafa WOW air, Skúla Mog­en­sen. Í skýrsl­unni segir enn fremur að Deloitte telji, að lok­inni athugun sinni, að „greiðslur WOW vegna rekst­urs og leigu fyrr­greindrar íbúðar hafi ekki verið reistar á við­skipta­legum for­sendum enda engar vís­bend­ingar um að íbúðin hafi verið nýtt í þágu starfs­manna WOW, hvorki flug­fólks né ann­arra almennra starfs­manna. Skipta­stjórar skoða nú að krefj­ast end­ur­greiðslu þess fjár sem WOW greiddi vegna fyrr­greindrar íbúð­ar.“

Skúli Mog­en­sen sagði í yfir­lýs­ingu sem hann sendi á fjöl­miðla síð­ast­lið­inn mánu­dag að þegar WOW air hafi farið að leigja íbúð­ina, í byrjun árs 2017, hafi flug­fé­lagið verið að und­ir­búa opnun á nýrri starfs­stöð í London eða Dublin og jafn­framt verið að skoða mögu­lega skrán­ingu á mark­aði í London. „Hvort tveggja kall­aði á veru­lega við­veru for­stjóra í London. WOW air skil­aði yfir 4 millj­örðum í hagnað árið 2016 og því voru þessi áform eðli­legt skref í áfram­hald­andi upp­bygg­ingu WOW air á þeim tíma og ekk­ert óeðli­legt við það að félagið skyldi leigja hús­næði fyrir for­stjóra félags­ins í þeim til­gangi að sinna þeim verk­efn­um.“

Þessi frétt er hluti af stærri umfjöllun um skýrslu skipta­stjóra WOW air. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent