Seldu losunarheimildir til að borga laun fyrir marsmánuð

Skiptastjórar WOW air eru meðal annars búnir að selja skrifstofubúnað og reiðhjólaleigu WOW air til að auka endurheimtir í búið. Félagið hafði selt margar verðmætar eignir, t.d. afgreiðslutíma á flugvelli og losunarheimildir, fyrir gjaldþrot.

wow air reiðhjól
Auglýsing

WOW átti ekki mikið af eignum þegar félagið fór í þrot. Félagið átti til að mynda enga fast­eign en leigði fjöl­margar slík­ar. Fast­eignir í eigu félags­ins höfðu verið seldar í dauða­stríð­inu til að tryggja WOW air laust fé. 

Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu skipta­stjóra WOW air sem kynnt var fyrir kröfu­höfum félags­ins fyrir rúmri viku. Skýrslan byggir meðal ann­ars á athugun Deloitte á því sem átti sér stað innan WOW air áður en félagið fór í gjald­þrot í lok mars. Hægt er að lesa ítar­lega skýr­ingu um nið­ur­stöðu hennar hér

Skömmu fyrir gjald­þrot WOW air seldi félagið los­un­ar­heim­ildir kolefnis fyrir um 450 millj­ónir króna. Upp­hæð­ina átti að nota til að borga laun fyrir mars­mán­uð. WOW air hafði fengið umræddar los­un­ar­heim­ildir úthlutað án end­ur­gjalds og virði þeirra hafði hækkað umtals­vert á starfs­tíma félags­ins.

Vand­séð er hvernig stjórn­endur WOW air ætl­uðu að starfa áfram án los­un­ar­heim­ilda, en flug­rek­endur þurfa að afla sér slíkra til að mega fljúga. 

Í skýrslu skipta­stjór­anna kemur fram að fjár­hæðin sem los­un­ar­heim­ild­irnar voru seldar fyrir hafí ekki verið greidd við þrot WOW air, en að hún hafi nú skilað sér „eftir nokkra eft­ir­gangs­mun­i“.

Auglýsing
WOW air seldi líka alla afgreiðslu­tíma sína á Gatwick flug­velli seint á síð­asta ári, en slíkir afgreiðslu­tímar, eða „slott“, eru afar eft­ir­sótt­ir. Þegar greint var frá söl­unni, sem var líkt og annað á þeim tíma fram­kvæmt til að verða sér úti um fljót­legt reiðufé til rekstrar WOW air, var verðið ekki gefið upp og sgt trún­að­ar­mál. 

Í skýrslu skipta­stjór­anna kemur hins vegar fram að enn hafi verið um 200 millj­ónir króna af kaup­verð­inu ógreiddar á þeim tíma sem félagið fór til gjald­þrot. Þær 200 millj­ónir króna skyldu þó aðeins greið­ast ef WOW air yrði úthlutað afgreiðslu­tímum á Gatwick flug­velli vet­ur­inn 2019-2020. Úthlutun þeirra tíma fór fram í maí 2019, nokkru eftir að WOW air var farið í þrot. í skýrsl­unni segir að þrota­bú­inu hafi tek­ist „að fá afgreiðslu­tímum úthlut­uðum til sín þrátt fyrir gjald­þrot og gat því efnt samn­inga við kaup­end­ur. Það útheimti mikla vinnu skipta­stjóra sem og inn­lendra og erlendra sér­fræð­inga að tryggja þá úthlutun afgreiðslu­tíma til þrota­bús­ins og greiðslu eft­ir­stöðva kaup­verðs.“

Fleira hefur verið selt. Til að mynda vara­hluta- og verk­færa­lager WOW air, bílar, skrif­stofu­hús­gögn, skrif­stofu­bún­að­ur, lag­er, reið­hjóla­leiga auk þess sem end­ur­heimst hafa 111 millj­ónir króna vegna fjár­muna sem settir höfðu verið til trygg­inga á ýmsum við­skipt­u­m. 

Þessi frétt er hluti af stærri umfjöllun um skýrslu skipta­stjóra WOW air. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent