Í skýrslu skiptastjóra WOW air kemur fram að þrotabú félagsins sé enn í viðræðum við nokkra aðila um sölu á vörumerkinu WOW air, lénum félagsins, bókunarvél og ýmsu lausafé sem tengist rekstri félagsins. „Þær viðræður ganga ágætlega og vonast skiptastjórar til þess að ljúka samningum um sölu þeirra eigna.“
Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu skiptastjóra WOW air sem kynnt var fyrir kröfuhöfum félagsins fyrir rúmri viku. Skýrslan byggir meðal annars á athugun Deloitte á því sem átti sér stað innan WOW air áður en félagið fór í gjaldþrot í lok mars. Hægt er að lesa ítarlega skýringu um niðurstöðu hennar hér.
Eini áhugasami kaupandinn sem greint hefur verið frá opinberlega er bandaríska athafnakonan Michelle Ballarin. Hún gerði kaupsamning um valdar eignir úr þrotabúi WOW air í júlí en honum var síðan rift. Hún kom svo í viðtal við ViðskiptaMoggann skömmu síðar og þar fullyrti hún að búið væri að tryggja milljarða króna til reksturs nýs flugfélags á grunni WOW air sem ætti að duga næstu tvö árin.
Ballarin var svo stödd hér á landi á ný um miðjan ágúst. Fréttavefurinn Túristi.is, sem sérhæfir sig í ferðaþjónustutengdum fréttum, greindi þá frá því að erindi hennar væri að að reyna aftur við stofnun nýs flugfélags á grunni WOW air. Hérlendis voru fulltrúar hennar sagðir almannatengillinn Gunnar Steinn Pálsson og lögmaðurinn Páll Ágúst Ólafsson.
Sveinn Andri Sveinsson, annar skiptastjóra þrotabús WOW air, sagði á þeim tíma, í samtali við Kjarnann, að Ballarin hefði ekki sett sig í samband við þrotabúið á ný.
Þessi frétt er hluti af stærri umfjöllun um skýrslu skiptastjóra WOW air.