Vonast enn til að selja vörumerkið WOW air

Skiptastjórar WOW air segja að viðræður um að selja vörumerki, lén og bókunarvél félagsins gangi ágætlega.

wow air
Auglýsing

Í skýrslu skipta­stjóra WOW air kemur fram að þrotabú félags­ins sé enn í við­ræðum við nokkra aðila um sölu á vöru­merk­inu WOW air, lénum félags­ins, bók­un­ar­vél og ýmsu lausafé sem teng­ist rekstri félags­ins. „Þær við­ræður ganga ágæt­lega og von­ast skipta­stjórar til þess að ljúka samn­ingum um sölu þeirra eigna.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu skipta­stjóra WOW air sem kynnt var fyrir kröfu­höfum félags­ins fyrir rúmri viku. Skýrslan byggir meðal ann­ars á athugun Deloitte á því sem átti sér stað innan WOW air áður en félagið fór í gjald­þrot í lok mars. Hægt er að lesa ítar­lega skýr­ingu um nið­ur­stöðu hennar hér

Eini áhuga­sami kaup­and­inn sem greint hefur verið frá opin­ber­lega er banda­ríska athafna­konan Michelle Ball­ar­in. Hún gerði kaup­samn­ing um valdar eignir úr þrota­búi WOW air í júlí en honum var síðan rift. Hún kom svo í við­­tal við Við­­skipta­Mogg­ann skömmu síðar og þar full­yrti hún að búið væri að tryggja millj­­arða króna til rekst­­urs nýs flug­­­fé­lags á grunni WOW air sem ætti að duga næstu tvö árin. 

Auglýsing
Í lok júlí var kaup­unum hins vegar rift vegna þess að síend­­ur­­tekið hafði dreg­ist að borga fyrstu greiðslu sam­­kvæmt kaup­­samn­ingi sem gerður var milli félags Ball­arin og þrota­­bús­ins. Heild­­ar­um­­fang við­­skipt­anna átti að vera ríf­­lega 180 millj­­ónir króna og sú greiðsla að greið­­ast í þremur nokkuð jöfnum áföng­­um. 

Ball­arin var svo stödd hér á landi á ný um miðjan ágúst. Frétta­vef­ur­inn Túrist­i.is, sem sér­­hæfir sig í ferða­­þjón­ust­u­tengdum frétt­u­m, greindi þá frá því að erindi hennar væri að að reyna aftur við stofnun nýs flug­fé­lags á grunni WOW air. Hér­­­lendis voru full­­trúar hennar sagðir almanna­teng­ill­inn Gunnar Steinn Páls­­son og lög­­­mað­­ur­inn Páll Ágúst Ólafs­­son.

Sveinn Andri Sveins­­son, annar skipta­­stjóra þrota­­bús WOW air, sagði á þeim tíma, í sam­tali við Kjarn­ann, að Ball­arin hefði ekki sett sig í sam­­band við þrota­­búið á ný.

Þessi frétt er hluti af stærri umfjöllun um skýrslu skipta­stjóra WOW air. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent