Halda því fram að blaðamaður hafi fengið trúnaðarupplýsingar frá héraðssaksóknara

Sjólaskipasystkinin hafa kært meintan upplýsingaleka frá héraðssaksóknara í fjölmiðla.

LRG_DSC01753.JPEG
Auglýsing

Sjóla­skipa­systk­in­in, sem ákærð eru fyrir umfangs­mikil skattsvik, hafa kært til rík­is­sak­sókn­ara mein­tan upp­lýs­inga­leka frá hér­aðs­sak­sókn­ara í fjöl­miðla. Frá þessu er greint á RÚV. Þau krefj­ast jafn­framt að máli hér­aðs­sak­sókn­ara gegn þeim verði vísað frá dómi.

Sam­kvæmt frétt RÚV telja þau að Ingi Freyr Vil­hjálms­son, fyrr­ver­andi blaða­maður á Frétta­tím­anum sem starfar nú hjá Stund­inni, hafi fengið trún­að­ar­upp­lýs­ingar um rann­sókn skatta­máls­ins frá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara. Þær upp­lýs­ingar hafi verið nýttar við skrif á tveimur frétta­grein­um.

Sá sem sækir skatta­málið gegn systk­inum fyrir hönd hér­aðs­sak­sókn­ara er Finnur Þór Vil­hjálms­son, bróðir Inga Freys, sam­kvæmt frétt­inn­i. Kæran bein­ist þó að emb­ætt­inu en ekki sak­sókn­ar­anum per­sónu­lega.

Auglýsing

Ákæran á hendur systkin­unum í Sjóla­skipum fyrir skatta­laga­brot var þing­fest í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í gær. Þar kröfð­ust verj­endur systk­in­anna þess að mál­inu yrði vísað frá dómi. Krafan er byggð á því að Ingi Freyr, bróðir Finns, hafi skrifað stærstan hluta frétta af mál­inu þegar það var til rann­sókn­ar. Sak­born­ingar telja þetta ástæðu til að draga í efa hlut­leysi sak­sókn­ara.

Nöfn systk­in­anna í Panama­skjöl­unum

Frétta­tím­inn greindi frá því í nóv­em­ber árið 2016 að skatt­rann­sókn­ar­stjóri hefði kært við­skipti systk­in­anna í skatta­skjól­inu Tortólu til hér­aðs­sak­sókn­ara. Í frétt blaðs­ins kom meðal ann­ars fram að aflands­fé­lögin á Tortólu hefðu verið notuð til að greiða kredit­korta­reikn­inga fjöl­skyldu­með­lima.

Í frétt Frétta­tím­ans og Reykja­vík Media frá því í októ­ber 2016 kom enn fremur fram að Sjóla­skip hefði átt útgerð á Kanarí­eyjum sem fyr­ir­tækið seldi Sam­herja árið 2007 fyrir nokkra millj­arða króna. Nöfn systk­in­anna fjög­urra, þeirra Guð­mundar Stein­ars Jóns­son­ar, Har­aldar Reynis Jóns­son­ar, Ragn­heiðar Jónu Jóns­dóttur og Berg­lindar Bjarkar Jóns­dótt­ur, hefði jafn­framt verið að finna í Panama­skjöl­unum svoköll­uðu frá Mossack Fon­seca.

Hér­aðs­sak­sókn­ari mót­mælir full­yrð­ing­unum

Sam­kvæmt RÚV mót­mælir emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara full­yrð­ingum ákærðu í mál­inu. Hér­aðs­sak­sókn­ari seg­ist ekki hafa fengið upp­lýs­ingar um kær­urnar fyrr en við þing­fest­ingu máls­ins í gær. Gert er ráð fyrir því að Finnur Þór flytji mál hér­aðs­sak­sókn­ara þegar frá­vís­un­ar­krafan verður flutt.

Í frétt RÚV kemur enn fremur fram að kæran til rík­is­sak­sókn­ara snú­ist ann­ars vegar um upp­lýs­ingar sem birt­ust í fyrr­nefndri frétt í Frétta­tím­anum í nóv­em­ber 2016 og hins vegar upp­lýs­ingar sem birt­ust í Stund­inni í mars um að rann­sókn Hér­aðs­sak­sókn­ara væri lok­ið. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent